Málsháttur
Lengi býr að fyrstu gerð.
Rosa pulverulenta
Ættkvísl   Rosa
     
Nafn   pulverulenta
     
Höfundur   Bieb.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Límrós
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti   Rosa azerbajdzhanica Novopokr. & Rzazade, Rosa glutinosa Sm., Rosa nisami Sosn.
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Rósbleikur-ljósbleikur.
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   30-70 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Þéttvaxinn runni, 30-70 sm hár, með fjölda af stinnum, beinum eða bognum hvítleitum þyrnum innan um kirtilþornhár. Axlablöð breið.
     
Lýsing   Smálauf (3-)5-7(-9), oddbaugótt til öfugegglaga eða kringlótt, 0,7-1,5 sm löng, hárlaus beggja vegna eða ögn dúnhærð, með kirtla á blaðröndunum, tvísagtennt, tennur með kirtla. Með stoðblöð. Blómstæðið slétt eða með kirtilþornhár. Blómin 1-2, einföld, 2,5-3,8 sm breið, bikarblöð með fáeina kirtilrenda hliðarflipa dálítið breiðari í oddinn og eru langæ á nýpunni. Krónublöð rósbleik, stílar lausir, standa ekki fram úr blóminu, fræni ullhærð. Nýpur allt að 2,5 sm breiðar, sporvala eða hálfhnöttóttar dökkrauðar, sléttar eða kirtilþornhærðar.
     
Heimkynni   S Evrópa til Litla Asía, Líbanon, Íran, Afganistan, Kákasus.
     
Jarðvegur   Frjór, meðalrakur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   Z6
     
Heimildir   = 1, Huxley & al. 1992: The New Royal Horticultural Society Dictionary of Gardening 4, navigate.botanicgardens.org/weboi/oecgi2.exe/INET-ECM-DispPl?NAMENUM=18031&DETAIL=&startpage1
     
Fjölgun   Sáning, græðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í beðkanta. Þurrkþolin.
     
Reynsla   Límrósinni var sáð í Lystigarðinum 1993 og plantað í beð 2001, kelur ekkert, vex vel og blómstrar mikið, en nær ekki að þroska nýpurnar.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is