Halldór Laxness

"Blóm eru ódauðleg... þú klippir þau í haust og þau vaxa aftur í vor, - einhversstaðar."

Acaena glabra
Ættkvísl   Acaena
     
Nafn   glabra
     
Höfundur   Buch.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Gljáþyrnilauf
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Runnkennd, fjölær planta, sígræn.
     
Kjörlendi   Sól, hálfskuggi.
     
Blómlitur   Rauður, bleikur.
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   10-15 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Skriðul, fjölær, runnkennd, fjölær planta, trékennd neðst, allt að 10 sm. Layf allt að 7 sm, með 9-13 smálauf, hárlaus. Axlablöð heilrend eða 3-5-klofin. Smálauf allt að 11 x 7 mm, öfugegglaga, skærgræn og gljáandi ofan, verða bláleitir neðan, með 7-9 tennur, tennurnar djúpskertar, oft rauðar.
     
Lýsing   Blómin í allt að 100 blóma kolli og kollurinn allt að 1,5 sm í þvermál. Bikarblöð 4, fræflar 2, frjóhnappar oftast hvítir, sjaldan rauðir, stíll 1, hvítur. Aldin ein öfughyrnulaga hneta, 5 x 4 mm, hárlaus, þyrnar 2, ekki með gadd, umlukt af vængjum.
     
Heimkynni   Nýja Sjáland (suðureyjan).
     
Jarðvegur   Léttur, frjór, framræstur, fremur þurr.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   = 1, davesgarden.com/guides/pf/go/83387/#b, m.nzpcn.org.nz/flora-details.aspx?Id=1441
     
Fjölgun   Skipting, sáning, græðlingar.
     
Notkun/nytjar   Sem undirgróður, í steinhæðir, sem þekjugróður. Þurrkþolin planta.
     
Reynsla   Fremur viðkvæm tegegund sem hefur reynst þokkalega á Akureyri (H.Sig.). Ekki í Lystigarðinum 2015.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is