Málsháttur
Engin er rós án þyrna.
Rhododendron catawbiense
Ættkvísl   Rhododendron
     
Nafn   catawbiense
     
Höfundur   Michx.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Dröfnulyngrós
     
Ætt   Lyngætt (Ericaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Sígrænn runni.
     
Kjörlendi   Sól - léttur skuggi.
     
Blómlitur   Purpuralitur.
     
Blómgunartími   Snemmsumars.
     
Hæð   1-1,5 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Dröfnulyngrós
Vaxtarlag   Sígrænn, meiri á breiddina, myndar þykkni, þolir illa næðing. Runni sem getur orðið allt að 3 m hár. Ungir sprotar lóhærðir í fyrstu.
     
Lýsing   Lauf 6,5-11,5 sm, breiðoddbaugótt til öfugegglaga, 1,9-2,3 sinnum lengri en þau eru breið, fullvaxin hárlaus nema neðst á neðra borði. Bikar allt að 1 mm, hárlaus. Króna allt að 3-4,5 sm, trekt-bjöllulaga, oftast lilla-purpuralit með dauflitar doppur. Eggleg dúnhært með hárakrans, stíll hárlaus. Fræhýði allt að 2 sm löng. &
     
Heimkynni   A N Ameríka.
     
Jarðvegur   Meðalrakur, súr (pH 4-5), sendinn, lífefnaríkur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   4
     
Heimildir   = 1, 7
     
Fjölgun   Sáning, síðsumargræðlingar með hæl að hausti (hormónameðferð).
     
Notkun/nytjar   Notuð í þyrpingar, eða stakstæð, blönduð beð. Viðkvæm og þarf vetrarskýlingu, þarf nokkurn loftraka til að þrífast. Þrífst best í jarðvegsblöndu sem samanstendur af mýramold, vel unninni laufmold og sandi.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum eru nokkrar plöntur sem sáð var til 1991, og gróðursettar voru í beð 2001. Vetrarskýling frá 2001 til vors 2007. Flestar lifa enn, kala lítið og blómstra af og til.
     
Yrki og undirteg.   ‘Album’ Blómin eru stór og hvít, en blómknapparnir eru lilla litir áður en þeir springa út. Rhododendron catawbiense ‘Catawbiense Grandiflorum’ Waterer (1850) Bretland. Þetta er kvæmi/úrval af villitegundinni R. catawbiense, sem er í ræktun. Mjög harðgerður og kröftugur runni, sem er um 2,5 m hár, talinn geta orðið allt að 6 m. Blómklasarnir eru kúlulaga með lilla-purpuralit blóm, hvert og eitt með gulan blett. http://www.briggsplantpropagators.com, http://www.hirsutum.info
     
Útbreiðsla  
     
Dröfnulyngrós
Dröfnulyngrós
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is