Páll Ólafsson, Ljóðið Vetrarkveðja
Margt er gott að muna þér
þó mér þú fyndist langur.
Farðu vel, þú færðir mér
fögnuð bæði og angur.

Þó að nísti frostið fast
og fölni grænir hagar
eftir þetta kuldakast
koma betri dagar.
Primula x pubescens 'Mrs J.H. Wilson'
Ættkvísl   Primula
     
Nafn   x pubescens
     
Höfundur   Jacq.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Mrs J.H. Wilson'
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Frúarlykill
     
Ætt   Maríulykilsætt (Primulaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól, hálfskuggi.
     
Blómlitur   Fjólublár með hvítt auga.
     
Blómgunartími   Maí.
     
Hæð   10-20 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Frúarlykill
Vaxtarlag   Lágvaxnar, þéttar plöntur, ekkert mél á blöðum og blómum.
     
Lýsing   Laufin heil í þéttum hvirfingum við jörð, mynda smá saman þó nokkrar breiður. Blóm á stöngulendum blaðlausra stöngla í fáblóma sveipum.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Framræstur, meðalþurr.
     
Sjúkdómar   Engir.
     
Harka   5
     
Heimildir   = 1, 12
     
Fjölgun   Skipting að vori eða hausti, sáning.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, í kanta, í skrautblómabeð, í þekju/breiður.
     
Reynsla   Harðgerð og auðræktuð planta, mjög algeng í görðum.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Frúarlykill
Frúarlykill
Frúarlykill
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is