Halldór Kiljan Laxness - Heimsljós "Fegursta blómið, það lifir í huldum stað, fæstir fá nokkurntíma að sjá það, mörgum sést yfir það, nokkrir kunna ekki skil á gildi þess, þeir sem uppgötva það munu ekki sjá annað blóm síðan. Allan daginn hugsar maður um það. Þegar maður sefur dreymir mann það. Maður deyr með nafn þess á vörum."
|
Ættkvísl |
|
Primula |
|
|
|
Nafn |
|
florindae |
|
|
|
Höfundur |
|
Kingdon-Ward. |
|
|
|
Ssp./var |
|
|
|
|
|
Höfundur undirteg. |
|
|
|
|
|
Yrki form |
|
|
|
|
|
Höf. |
|
|
|
|
|
Íslenskt nafn |
|
Friggjarlykill |
|
|
|
Ætt |
|
Maríulykilsætt (Primulaceae). |
|
|
|
Samheiti |
|
|
|
|
|
Lífsform |
|
Fjölær jurt. |
|
|
|
Kjörlendi |
|
Sól, hálfskuggi. |
|
|
|
Blómlitur |
|
Brennisteinsgulur. |
|
|
|
Blómgunartími |
|
Júlí. |
|
|
|
Hæð |
|
70-90 sm |
|
|
|
Vaxtarhraði |
|
|
|
|
|
|
|
|
Vaxtarlag |
|
Stærstur þeirra lykla sem í ræktun eru hérlendis, með miklar og djúpar rætur, blómleggir allt að 90 sm háir. |
|
|
|
Lýsing |
|
Laufin allt að 20 x 15 sm, sumargræn, blaðkan egglaga, grunnur hjartalaga, leggir laufa allt að 40 sm langir með mjóa vængi, oft rauðleitir. Blómstönglar allt að 150 sm, hárlausir, stundum aðeins mélugir ofan til, sveipir með (10)15-30(-80) blómum. Blómleggir 2-10 sm +/- mélugir, rjómalitir. Bikar allt að 1 sm, bjöllulaga, 8-10 mm, gul mélugur að innan, klofinn að 1/3, áberandi 5 æðóttur, flipar ögn aftursveigðir. Krónan um 2 sm í þvermál, bjöllulaga, ilmandi, brennisteinsgul, flipar bogadregnir, heilir, yddir eða ögn tenntir. Fræhýði 2 x lengri en bikarinn. Fræ um það bil 2 mm. |
|
|
|
Heimkynni |
|
Kína, SA Tíbet. |
|
|
|
Jarðvegur |
|
Frjór, rakur. |
|
|
|
Sjúkdómar |
|
Engir. |
|
|
|
Harka |
|
6 |
|
|
|
Heimildir |
|
= 1,2 |
|
|
|
Fjölgun |
|
Skipting að vori eða hausti, græðlingar að hausti, sáning að hausti. |
|
|
|
Notkun/nytjar |
|
Sem undirgróður, í skrautblómabeð, í blómaengi. |
|
|
|
Reynsla |
|
Mjög falleg, auðræktuð og vinsæl garðplanta. Hefur vaxið lengi í garðinum. Vex á árbökkum og rökum svæðum í greniskógum í 2600-4000 m hæð í heimkynnum sínum. |
|
|
|
Yrki og undirteg. |
|
Ýmis yrki eru til í görðum, til dæmis blendingar með rauðgul blóm og rauð blóm (að öðru leyti eins) til dæmis 'Aurantiaca', 'Bronze', 'Crimson Gold' og 'Rubra'. |
|
|
|
Útbreiðsla |
|
|
|
|
|
|
|