Jón Thoroddsen - Barmahlíð
Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!
Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.
Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?
Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali! |
|
Potentilla 'Jeane Salter'
Ættkvísl |
|
Potentilla |
|
|
|
Nafn |
|
|
|
|
|
Höfundur |
|
|
|
|
|
Ssp./var |
|
|
|
|
|
Höfundur undirteg. |
|
|
|
|
|
Yrki form |
|
'Jeane Salter' |
|
|
|
Höf. |
|
|
|
|
|
Íslenskt nafn |
|
Rósamura |
|
|
|
Ætt |
|
Rósaætt (Rosaceae). |
|
|
|
Samheiti |
|
P × hybrida 'Jeane Salter' |
|
|
|
Lífsform |
|
Fjölær jurt. |
|
|
|
Kjörlendi |
|
Sól. |
|
|
|
Blómlitur |
|
Appelsínugul með skærrauða slikju. |
|
|
|
Blómgunartími |
|
Júní til september. |
|
|
|
Hæð |
|
-45 sm |
|
|
|
Vaxtarhraði |
|
|
|
|
|
|
|
|
Vaxtarlag |
|
Þýfður fjölæringur. |
|
|
|
Lýsing |
|
Fjölæringur, 30-45 sm hár og 60 sm breiður, sem myndar þúfur. Laufin minna á jarðarberjalauf. Blómin appelsínugul með skarlatsrauða slikju, einföld. |
|
|
|
Heimkynni |
|
Yrki. |
|
|
|
Jarðvegur |
|
Magur jarðvegur eða meðalfrjór, vel framræstur. |
|
|
|
Sjúkdómar |
|
|
|
|
|
Harka |
|
|
|
|
|
Heimildir |
|
http://www.perhillplants,co,uk, http://www.gardenology.org |
|
|
|
Fjölgun |
|
Skipting. |
|
|
|
Notkun/nytjar |
|
Í steinhæðir, beð, kanta. |
|
|
|
Reynsla |
|
Í Lystigarðinum eru til tvær plöntur undir þessu nafni, hafa lifað þar frá 1982 a.m.k. Harðgerðar og þrífast vel. |
|
|
|
Yrki og undirteg. |
|
|
|
|
|
Útbreiðsla |
|
|
|
|
|
|
|