Þuríður Guðmundsdóttir - Rætur
Ég geng um skrúðgarða borgar
og blómin horfa á mig
litríkum framandi augum
og ilmur þeirra er alltaf nýr

Í fjarska situr fölblá gleymmérei
á fötum lítils barns

Því blágresi, holtasóley og steinbrjótur
voru blóm bernsku minnar

Og rætur þeirra
verða alltaf mínar

Potentilla 'Dr. André'
Ættkvísl   Potentilla
     
Nafn  
     
Höfundur  
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Dr. André'
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Rósamura
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti   P. × hybrida hort. 'Dr. André'
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Gullgulur með skarlatsrauða slikju.
     
Blómgunartími   Júní til september.
     
Hæð   - 45 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Rósamura
Vaxtarlag  
     
Lýsing   Fjölæringur, 30-45 sm hár og 60 sm breiður, sem myndar þúfur. Laufin minna á jarðarberjalauf. Blómin gullgul með skarlatsrauða slikju, hálffyllt.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Magur jarðvegur eða meðalfrjór, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   http://www.perhillplants.co.uk, http://www.gardenology.org
     
Fjölgun   Skipting.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, beð, kanta.
     
Reynsla   Ein planta hefur lengi verið til í Lystigarðinum, a.m.k frá 1982, harðgerð og þrífst vel.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Rósamura
Rósamura
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is