Málsháttur
Engin er rós án þyrna.
Lonicera periclymenum ‘Belgica’
Ættkvísl   Lonicera
     
Nafn   periclymenum
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   ‘Belgica’
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Skógartoppur
     
Ætt   Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi vafrunni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Hvítur með purpuraslikju.
     
Blómgunartími   Sumar.
     
Hæð   ' 2-3 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Stór og mikill, marggreindur runni allt að 3 m hár og 3 m breiður.
     
Lýsing   Lauf hárlaus þykk, oddbaugótt, aflöng blómin hvít með purpura slikju á ytra borði, seinna gul, ilma í stórum klösum. Berin stór, mörg, rauð.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, meðalrakur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   4
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   Græðlingar, sveiggræðsla.
     
Notkun/nytjar   Á veggi, utan á hús með klifurgrind.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta, sem keypt var 1991 og gróðursett í beð það sama ár. Vex mikið og kelur dálítið. Einnig er til önnur planta undir þessu nafni, sem sáð var til 1999 og gróðursett í beð 2001. Þrífst vel, kelur næstum ekkert.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is