Jón Thoroddsen - Barmahlíð

Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!

Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.

Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?

Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali!


Potentilla fruticosa 'Mörk'
Ættkvísl   Potentilla
     
Nafn   fruticosa
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Mörk'
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Runnamura
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Gulur.
     
Blómgunartími   Júlí-september.
     
Hæð   60-90 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Runnamura
Vaxtarlag   Sjá hjá aðaltegund.
     
Lýsing  
     
Heimkynni   Klón (íslenskt).
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, meðalrakur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   H4
     
Heimildir  
     
Fjölgun   Sumargræðlingar, 7,5 sm langir græðlingar með hæl síðsumars.
     
Notkun/nytjar   Í beð, í þyrpingar.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein aðkeypt plant sem var gróðursett í beð 2001, kelur mjög lítið.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Runnamura
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is