Jónas Hallgrímsson - Úr ljóðinu Dalvísa
Fífilbrekka! gróin grund!
grösug hlíð með berjalautum!
flóatetur! fífusund!
fífilbrekka! smáragrund!
yður hjá ég alla stund
uni best í sæld og þrautum;
fífilbrekka! gróin grund!
grösug hlíð með berjalautum!
Salix myrsinifolia ssp. borealis
Ættkvísl   Salix
     
Nafn   myrsinifolia
     
Höfundur   Salisb.
     
Ssp./var   ssp. borealis
     
Höfundur undirteg.   (Fr.) Hyl.
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Viðja
     
Ætt   Víðiætt (Salicaceae).
     
Samheiti   Réttara: Salix borealis Nas.
     
Lífsform   Lauffellandi runni - lítið tré.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur  
     
Blómgunartími   Vor.
     
Hæð   5-11 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Viðja
Vaxtarlag   Stór runni eða lítið, einstofna tré. Ársprotarnir eru hvítloðnir.
     
Lýsing   Laufin þykk, ljósgræn (ekki blágræn) á neðra borði, fínhærð á neðra borði og oftast ofan, dökkna dálítið þegar þau eru þurruð. Aðlagrein rekla oftast með stór lauf. Fræhýði oftast loðin. Miðað við aðaltegund er viðjan með hvítloðnari árssprota og þétthærðari blöð sem eru loðin á neðra borði (sbr. Virtuella Floren)- sjá nánar lýsingu á aðaltegund.
     
Heimkynni   N Evrópa.
     
Jarðvegur   Allur eða því sem næst.
     
Sjúkdómar   Blaðlús, maðkur.
     
Harka  
     
Heimildir   = 9, H.Kr. 2010 Íslenska plöntuhandbókin.
     
Fjölgun   Sumar- og vetrargræðlingar, (sáning).
     
Notkun/nytjar   Í limgerði, í skjólbelti, í þyrpingar, sem stakstæður runni. Notuð víða um land í skjólbelti og limgerði af ýmsum stærðum og gerðum, þolir mjög vel klippingu. Vex í mýrum og rökum skógum.
     
Reynsla   Hefur verið lengi í ræktun hérlendis og reynst prýðisvel um allt land eða svo gott sem. Hæsta viðja sem vitað er um á Akureyri var mæld 11 m í Hafnarstræti 1981.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla   Viðja er ræktu víð í görðum og í skjólbelti, sáir sér þaðan t.d. meðfram ám, vegum og í graslendi.
     
Viðja
Viðja
Viðja
Viðja
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is