Sigfús Daðason - Vængjasláttur
Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.

Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!

Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.

Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.

Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.



Erica mackaiana
Ættkvísl   Erica
     
Nafn   mackaiana
     
Höfundur   Bab.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Purpuralyng
     
Ætt   Lyngætt (Ericaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lítill sígrænn runni
     
Kjörlendi   Sól (hálfskuggi)
     
Blómlitur   Bleikur
     
Blómgunartími   Síðsumars
     
Hæð   0,2-0,4 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Smávaxinn sígrænn runni með uppréttar og/eða útafliggjandi uppsveiðgar greinar, árssprotar loðnir.
     
Lýsing   Sígrænn dvergrunni sem getur þó orðið allt að 40 sm hár. Sprotar jarðlægir eða uppréttir, ungar greinar loðnar. Lauf 4 saman í kransi, aflöng-lensulaga, jaðrar lítillega innundnir, oftast kirtilhærðir. Blómskipunin endastæð, í smásveip. Bikarblöð allt að 3 mm löng, hárlaus. Krónan allt að 7 mm, krukkulaga, bleik. Frjóhnappar ná ekki út úr blóminu, frjóhnappasepar langir og mjóir. Eggleg hárlaust.
     
Heimkynni   Spánn, Írland.
     
Jarðvegur   Vex best í rökum jarðvegi í mómýrum.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   3
     
Heimildir   = 1,http://nlbil.eti.uva.nl; http://www.backyardgardener.com
     
Fjölgun   Sáning, sumargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   í beð með súrum jarðvegi, í ker og í kassa.
     
Reynsla   Lítt reynd enn sem komið er. Hefur ekki verið sáð í Lystigarðinum, en ætti að geta þrifist hér.
     
Yrki og undirteg.   Fjöldi yrkja í ræktun og reyna mætti þau öll.
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is