Jónas Hallgrímsson - Úr ljóðinu Dalvísa
Fífilbrekka! gróin grund!
grösug hlíð með berjalautum!
flóatetur! fífusund!
fífilbrekka! smáragrund!
yður hjá ég alla stund
uni best í sæld og þrautum;
fífilbrekka! gróin grund!
grösug hlíð með berjalautum!
Lonicera myrtillus
Ættkvísl   Lonicera
     
Nafn   myrtillus
     
Höfundur   Hook. f. & Thoms.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Bjöllutoppur (myrtutoppur)
     
Ætt   Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni
     
Kjörlendi   Sól-hálfskuggi.
     
Blómlitur   Gulhvítur.
     
Blómgunartími   Vor-sumar.
     
Hæð   -1 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Lauffellandi runni, allt að 1 m hár, þéttur, kúlulaga. Greinar stinnar, ungar greinar dúnhærðar.
     
Lýsing   Lauf oddbaugótt eða egglaga, allt að 2,5 × 6,5 sm, hárlaus, dökkgræn ofan ljósari og bláleit neðan, jaðrar baksveigðir, Blómin tvö og tvö saman, á stuttum leggjum, ilmandi, gulhvít. Króna pípu- til bjöllulaga, allt að 8 mm, hárlaus. Stoðblöð mjó-aflöng, eggleg samvaxin, 2-, sjaldan 6-hólfa. Berin 6,5 mm í þvermál, appelsínurauð.
     
Heimkynni   Himalaja, Afganistan.
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, meðalrakur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   Vetrar- og sumargræðlingar, sáning, sveiggræðsla.
     
Notkun/nytjar   Fremst í blönduð trjábeð.
     
Reynsla   Aðaltegundinm er ekki í Lystigarðinum.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is