Þuríður Guðmundsdóttir - Rætur
Ég geng um skrúðgarða borgar
og blómin horfa á mig
litríkum framandi augum
og ilmur þeirra er alltaf nýr

Í fjarska situr fölblá gleymmérei
á fötum lítils barns

Því blágresi, holtasóley og steinbrjótur
voru blóm bernsku minnar

Og rætur þeirra
verða alltaf mínar

Syringa tomentella ssp. sweginzowii
Ættkvísl   Syringa
     
Nafn   tomentella
     
Höfundur   Bureau & Franchet
     
Ssp./var   ssp. sweginzowii
     
Höfundur undirteg.   (Koehne & Lingelsh.) Jin Y.Chen & D.Y.Hong
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Fölvasýrena / Draumsýrena
     
Ætt   Smjörviðarætt (Oleaceae).
     
Samheiti   Syringa sweginzowii Koehne & Lingl. , S. tigerstedtii H. Smith
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Bleikur, lilla-bleikur eða hvítur.
     
Blómgunartími   Júlí.
     
Hæð   2-3(-4) m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Fölvasýrena / Draumsýrena
Vaxtarlag   Lauffellandi, uppréttur runni allt að 4 m hár með fremur grönnum greinum.
     
Lýsing   Lauf oddbaugótt-aflöng, stundum mjórri en það, stundum egglaga eða lensulaga, 2-9×1,5-5 sm, hárlaus nema á miðstrengnum og stærstu hliðastrengjunum á neðar borði, ljósari neðan en ekki bláleit, grunnur yddur til snubbóttur eða næstum bogadreginn, oddur mjó-odddreginn. Blómskipanirnar endastæðar, stundum hliðstæðar, gisinn skúfur, uppréttar, 8-15 sm langir, hárlausar. Bikar 1,5-2 mm, tennur ógreinilegar, hárlausar. Krónan er bleik, lilla-bleik eða hvít, krónupípan næstum sívöl, 8-10 mm, flipar 3-5 mm, útstæðir og dálítið baksveigðir. Fræflarnir eru inni í krónupípunni. Hýðin mjó-egglaga, 1,5-2 sm, slétt.
     
Heimkynni   SV Kína.
     
Jarðvegur   Rakur-meðalrakur, vel framræstur, lífefnaríkur, frjór, kalkríkur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   H1
     
Heimildir   2
     
Fjölgun   Sumargræðlingar, sáning.
     
Notkun/nytjar   Í beð, þyrpingar og sem stakstæður runni.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum eru til nokkrar plöntur undir þessu nafni, sem sáð var til 1978, 1989 og 1991. Þær þrífast vel, hafa lítið sem ekkert kalið, blómstra árlega. Meðalharðgerður runni, fremur sjaldgæf tegund hérlendis. Snyrta þarf runnann reglulega.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Fölvasýrena / Draumsýrena
Fölvasýrena / Draumsýrena
Fölvasýrena / Draumsýrena
Fölvasýrena / Draumsýrena
Fölvasýrena / Draumsýrena
Fölvasýrena / Draumsýrena
Fölvasýrena / Draumsýrena
Fölvasýrena / Draumsýrena
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is