Sigfús Daðason - Vængjasláttur
Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.

Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!

Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.

Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.

Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.



Caltha palustris
Ættkvísl   Caltha
     
Nafn   palustris
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Hófsóley, lækjasóley
     
Ætt   Ranunculaceae
     
Samheiti  
     
Lífsform   fjölær
     
Kjörlendi   sól, hálfskuggi
     
Blómlitur   fagurgulur
     
Blómgunartími   júní
     
Hæð   0.3-0.5m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Hófsóley, lækjasóley
Vaxtarlag   myndarlegir blaðbrúskar, blómin Þar upp úr á kvíslgr. stönglum
     
Lýsing   blómin 3-4 cm í Þm. aldin 7-8mm belghýði m. ofurlítilli trjónu blöðin slétt, dökkgræn, hóflaga, bogtennt, hárlaus
     
Heimkynni   Ísland, Evrópa, N Ameríka
     
Jarðvegur   rakur, frjór
     
Sjúkdómar  
     
Harka   3
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   skipting, sáning, ýmis ræktunarafbrigði
     
Notkun/nytjar   beð, blómaengi, undirgróður, v. tjarnir og læki
     
Reynsla   Harðger, alg. um allt land
     
Yrki og undirteg.   'Flore Pleno' ('Multiplex') með fyllt blóm og 'Alba' með hvít blóm sem er smærri og ekki eins harðger og kraftmikil og fleiri eru í ræktun.
     
Útbreiðsla  
     
Hófsóley, lækjasóley
Hófsóley, lækjasóley
Hófsóley, lækjasóley
Hófsóley, lækjasóley
Hófsóley, lækjasóley
Hófsóley, lækjasóley
Hófsóley, lækjasóley
Hófsóley, lækjasóley
Hófsóley, lækjasóley
Hófsóley, lækjasóley
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is