Jón Thoroddsen - Barmahlíð

Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!

Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.

Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?

Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali!


Incarvillea compacta
Ættkvísl   Incarvillea
     
Nafn   compacta
     
Höfundur   Maxim.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Tíbetglóð
     
Ætt   Lúðurtrésætt (Bignoniaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Fölpurpura utan, gul innan
     
Blómgunartími   Ágúst.
     
Hæð   30 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Fjölær jurt, stöngullaus, stöku sinnum með stuttan stöngul, allt að 30 sm há.
     
Lýsing   Lauf 3-20 sm, hvirfingablöð eða grunnlauf, egglaga, hvassydd, grunnur hjartalaga, heilrend, æðastrengir smádúnhærðir, endaflipinn oddbaugóttur eða kringlóttir allt að 4 × 4 sm. Blómskipunin í 1-10-blóma klasa. Blómleggir allt að 5 sm, lengri þegar aldinið hefur þroskast, stoðblöð bandlaga, 2-4 sm, smástoðblöð minni. Bikarpípa allt að 1,8 sm, oft með svartar doppur, flipar allt að 7 × 1,2 sm, skakktígullaga. Krónuflipar allt að 3,9 × 2,8 sm, kringluleitir, föl-purpura á ytra borði, gullgul innan með purpura rákir, sjaldan hvít. Fræhýði allt að 13 × 11 sm, trékennd, ferhyrnd, bein, svart-doppótt. Fræ allt að 35 × 5 mm, með væng. Vængur 0,5 mm í þvermál.
     
Heimkynni   Tíbet, Kína.
     
Jarðvegur   Grýttur, meðalfrjór, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Sáning, skipting.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, í beð.
     
Reynsla   Þrífst vel í Lystigarðinum, var gróðursett í steinhæð 2009.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is