Málsháttur
Eigi fellur tré við hið fyrsta högg.
Acaena lucida
Ættkvísl   Acaena
     
Nafn   lucida
     
Höfundur   (Aiton) Vahl
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Smáþyrnilauf*
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt, sígræn.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Mógrænn.
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   - 20 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Fjölær jurt. Stönglar allt að 20 sm, skriðulir eða uppsveigðir, mjög greinótt. Greinar uppsveigðar til hálfuppréttar. Laufin allt að 4 x 1 sm, með 11-21 smálauf. Axlablöð 1 mm, smálauf aflöng til oddbaugótt eða egglaga-oddbaugótt, allt að 4 x 2 mm, heilrend eða 2-3 skipt, hvassydd, grnnur fleyglaga, með löng hár eða silkihærð, laufleggur allt að 2 mm.
     
Lýsing   Blómin í endastæðum kolli allt að 1 sm í þvermál, blómskipunarleggur allt að 10 sm, bikarblöð 4-5, 1 mm. Fræflar 2-3, frjóhnappar purpura, frænið óreglulegt í laginu. Aldin egglaga eða oddvala, allt að 4 mm, hárlaus eða lítið eitt langhært, þyrnar úrkynjaðir, lítt áberandi.
     
Heimkynni   V Argentína, A Chile, Falklandseyjar.
     
Jarðvegur   Sendinn, malarborinn.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   = 1, http://fr.hortipedia.com/wiki/Acaena-lucida,
     
Fjölgun   Sáning, skipting.
     
Notkun/nytjar   Sem þekjuplanta.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni, sem sáð var til 2010 og gróðusett í beð 2011, þrífst vel.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is