Sigfús Daðason - Vængjasláttur
Akureyri
mjög skreytt
reynitrjám.

Sá sem gengi um bæinn
á septemberkvöldi:
dimmur skuggi innfjarðarins
fylgdi honum á aðra hönd hvar sem hann færi,
lifandi, kvikur!
Sálarspegill!

Heilagur lundur
rís í hæðir.
Og gangi maður í lundinn
er hann þar einn með sjálfum sér.

Það gustar um limið
og fuglarnir í björtum trjákrónunum
fælast skóhljóð einmanans
og hviðra með vængjaslætti
yfir höfði hans og úti í myrkrinu.

Og upp fyrir honum rennur þá: hvílík
sú dýrð sem einmananum hlotnast.



Ligularia przewalskii
Ættkvísl   Ligularia
     
Nafn   przewalskii
     
Höfundur   (Maxim.) Diels.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Turnskjöldur
     
Ætt   Körfublómaætt (Asteraceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól (hálfskuggi).
     
Blómlitur   Gulur.
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   100-180 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Turnskjöldur
Vaxtarlag   Fjölær jurt, allt að 200 sm há. Stönglar dökk purpura.
     
Lýsing   Grunnlauf djúp handsepótt, laufhlutarnir flipóttir eða tenntir. Körfur margar, litlar í löngum, mjóum klösum. Geislablóm um 2, gul, hvirfingablóm um 3.
     
Heimkynni   N Kína.
     
Jarðvegur   Djúpur, fjór, rakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   4
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Skipting að vori, sáning að vori.
     
Notkun/nytjar   Í þyrpingar, í beð með fjölærum jurtum, við tjarnir og læki, sem undirgróður.
     
Reynsla   Harðgerð og þarf yfirleitt ekki uppbindingu, hefur reynst vel í Lystigarðinum.
     
Yrki og undirteg.   Myndar oft blendinga með sólskildi (L. stenocephala) sem er náskyldur, blöð verða þá meira eða minna flipótt t.d. sortin 'The Rocket'.
     
Útbreiðsla  
     
Turnskjöldur
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is