Málsháttur
Mjór er mikils vísir.
Thalictrum ramosum
Ættkvísl   Thalictrum
     
Nafn   ramosum
     
Höfundur   B. Boivin
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Hæðagras*
     
Ætt   Sóleyjarætt (Ranunculaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól-hálfskuggi.
     
Blómlitur   Hvítur með purpura slikju.
     
Blómgunartími   Júní.
     
Hæð   12-45 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Fjölær jurt, 12-45 sm há, hárlaus. Rætur aldrei grófgerðar. Stönglar greinóttir, greiptir. Laufin bæði grunnlauf og stöngullauf, laufleggur 7-9 sm, laufblaðka 2 eða 3 fjaðurskipt, 7-15 sm. Blaðka smálaufa breið-egglaga, breið-öfugegglaga eða kringlótt, 0,7-2 x 0,5-1,5 sm, laufkennd, grunnur bogadreginn eða hálfhjartalaga, snubbótt í oddinn, ógreinilega 3-flipótt, flipar oddhvassir, æðastrengur upphleyptir á neðra borði, flatir á efra borði.
     
Lýsing   Blómskipunin eifnaldur skúfur. Blómleggir þráðlaga, 5-10 sm. Bikarblöð 4, visna snemma, hvít með purpura slikju, egglaga, um 2 mm. Frjóþræðir þráðlaga við gruninn, 4-6 x lengd frjóhnappsins, mjó-öfuglensulaga. Frjóhnappar með gula slikju, um 0,7 mm. Frævur (6-)8-16, stíll baksveigður, grannur, um 2 mm, ögn lengri en egglegið. Hnetur legglausar, mjó-egglaga eða lensulaga, 3,5-4,5 mm, rif um 8.
     
Heimkynni   Kína.
     
Jarðvegur   Frjór, lífefnaríkur, meðalrakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   http://www.efloras.org/florataxon.aspx?flora-id=2&taxin-id=200.... , Flora of China.
     
Fjölgun   Sáning, skipting.
     
Notkun/nytjar   Í fjölæringabeð, í steinhæðir.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein plantu undir þessu nafni, sem sáð var til 1994 og gróðursett í beð 2003, þrífst vel.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla   Hæðagras (T. ramosum) er lækningajurt.
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is