Halldór Kiljan Laxness - Heimsljós

"Fegursta blómið, það lifir í huldum stað, fæstir fá nokkurntíma að sjá það, mörgum sést yfir það, nokkrir kunna ekki skil á gildi þess, þeir sem uppgötva það munu ekki sjá annað blóm síðan. Allan daginn hugsar maður um það. Þegar maður sefur dreymir mann það. Maður deyr með nafn þess á vörum."

Alnus glutinosa
Ættkvísl   Alnus
     
Nafn   glutinosa
     
Höfundur   (L.) Gaertn.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Rauðölur (rauðelri)
     
Ætt   Bjarkarætt (Betulaceae)
     
Samheiti   A. rotundifolia. Betula glutinosa
     
Lífsform   Tré
     
Kjörlendi   Sól
     
Blómlitur   Brúnn
     
Blómgunartími   Mars-apríl
     
Hæð   8-12 m
     
Vaxtarhraði   Verður meira en 12 m hátt tré og 4-8 m breitt. Er 20 – 50 ár að ná þessari stærð.
     
 
Rauðölur (rauðelri)
Vaxtarlag   Tré sem getur orðið allt að 20-25 m á hæð í heimkynnum sínum, oft margstofna. Töluvert lægra í ræktun hérlendis. Krónan breið-keilulaga til mjó-pýramídalaga, gisgreinótt. Börkur brúnsvartur, ungar greinar hárlausar, þaktar límkirtlum. Brumin grápurpura og ungir reklar áberandi að vetrinum.
     
Lýsing   Lauf skærgræn, 4-10 sm löng, eru á trénu langt fram á haust, haldast græn með ryðgula hæringu, á neðra borði, hárlaus í æðastrengjavikunum, breið-hálfegglaga til kringlótt, bogadregin í oddinn eða framjöðruð, grunnur odddreginn, jaðrar óreglulega bugðóttir, sjaldan tvítenntir, dökk glansandi græn ofan, ljósari neðan, hárlaus nema með ryðgula brúska í æðastrengjakrikunum, æðastrengjapör 5-6, sjaldan allt að 8, leggur 1-2,5 sm, ungir reklar áberandi að vetrinum, karlreklar 5-10 sm, 3-5 saman, kvenreklar 1-2 sm, egglaga, með langan legg, 3-8 saman. Aldin dökkbrún að haustinu. Blómin eru einkynja (hvert blóm er annað hvort karlkyns eða kvenkyns, en bæði kynin er að finna á sömu plöntunni), vindfrævun. Aldin lítil vængjuð hnot. Helst grænt langt fram eftir hausti. Á rótum eru hnúðar með geislasvepp (Frankia) sem vinna köfnunarefni handa trénu - ekki ofgera með köfnunarefnisáburði það getur skaðað tréð.
     
Heimkynni   Evrópa til Kákasus og Síberíu, N Afríka.
     
Jarðvegur   Þungur, meðalþungur, rakur, vel eða illa framræstur
     
Sjúkdómar  
     
Harka   3
     
Heimildir   1, 7, http://apps.rhs.org.uk, http://www.pfaf.org, ÓN
     
Fjölgun   Sumargræðlingum (í júlí), sáning.
     
Notkun/nytjar   Stakstæð, í þyrpingar, í blönduð beð. Plantað þar sem lítið er haft fyrir ræktuninni svo sem í villiblómaengi, í mýragarða til skjóls við strendur eða limgerði til skjóls. Elrið nemur köfnunarefni úr andrúmsloftinu. Plantan getur vaxið nálægt sjó. Ættkvíslin (Alnus/elri) er þekkt fyrir að þrífast vel í mögrum, blautum jarðvegi og víða notuð við uppgræðslu.
     
Reynsla   Klónn í LA frá Finnlandi er afar harðgerður, vex vel og kelur ekkert (Spont.: Finnland, Kokkola, Norra Hamnskäret frá Oulu 1982). Rauðelrinafnið er dregið af rauðum kjarnaviði í miðju stofnsins.
     
Yrki og undirteg.   Fjöldi yrkja og forma er í ræktun erlendis, lítt eða ekki reynd hérlendis.
     
Útbreiðsla  
     
Rauðölur (rauðelri)
Rauðölur (rauðelri)
Rauðölur (rauðelri)
Rauðölur (rauðelri)
Rauðölur (rauðelri)
Rauðölur (rauðelri)
Rauðölur (rauðelri)
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is