Jón Helgason - úr ljóðinu Á Rauðsgili Hugrökk teygist á háum legg
hvönnin fram yfir gljúfravegg,
dumbrauðu höfði um dægrin ljós
drúpir hin vota engjarós.
|
Ættkvísl |
|
Heracleum |
|
|
|
Nafn |
|
sphondylium |
|
|
|
Höfundur |
|
L. |
|
|
|
Ssp./var |
|
|
|
|
|
Höfundur undirteg. |
|
|
|
|
|
Yrki form |
|
|
|
|
|
Höf. |
|
|
|
|
|
Íslenskt nafn |
|
Hrossahvönn |
|
|
|
Ætt |
|
Sveipjurtaætt (Apiaceae). |
|
|
|
Samheiti |
|
|
|
|
|
Lífsform |
|
Tvíær eða fjölær jurt. |
|
|
|
Kjörlendi |
|
Sól, hálfskuggi. |
|
|
|
Blómlitur |
|
Hvítur til fölgrængulur eða bleikmengaður. |
|
|
|
Blómgunartími |
|
Júní-júlí. |
|
|
|
Hæð |
|
80-250 sm |
|
|
|
Vaxtarhraði |
|
Vex hratt. |
|
|
|
|
|
|
Vaxtarlag |
|
Tvíær eða fjölær jurt, allt að 250 sm há. Stönglar rákóttir, hárlausir til stinnhærðir. Lauf heil eða handskipt, flipótt til fjöðruð í 5 hluta, bog- eða sagtennt, hárlaus til lítið eitt dúnhærð ofan, dúnhærð til stinnhærð neðan. |
|
|
|
Lýsing |
|
Sveipir allt að 20 sm í þvermál, geislar 20-50 talsins. Reifablöð bandlaga, blóm hvít til fölgrængul eða bleikmenguð. Aldin 7-10 mm. |
|
|
|
Heimkynni |
|
Evrópa, Asía, N-Bandaríkin. |
|
|
|
Jarðvegur |
|
Djúpur, frjór, rakaheldinn, framræstur. |
|
|
|
Sjúkdómar |
|
Engir. |
|
|
|
Harka |
|
|
|
|
|
Heimildir |
|
= 1 |
|
|
|
Fjölgun |
|
Skipting að vori eða hausti, sáning að hausti. |
|
|
|
Notkun/nytjar |
|
Sem undirgróður, í skrautblómabeð, við tjarnir og læki, í skógarbotn. |
|
|
|
Reynsla |
|
Hrossahvönn (H. sphondylium ss. sibiricum) er til í Lystigarðinum, ein planta sem sáð var til 1991 og gróðursett í beð 2004, þrífst vel. -------
Er algengasta hvannartegundin í Evrópu, og mjög breytileg. |
|
|
|
Yrki og undirteg. |
|
ssp. montanum (Schleich. ex Gaudin) Briq. -- Neðstu laufin 3-skipt, flipar egglaga, hvítlóhærðir neðan. Sveipir með 12-25 geisla. Blómin hvít, ytri krónublöðin geislastæð. -- Heimkynni: M & S Evrópa, A-Rússland, Bandaríkin.
--------------------------------------------------------------------
ssp. sibiricum (L.) Simonkai ---- Neðstu laufin fjaðurskipt, flipar 5-7 talsins, oft fjaðurflipóttir, dúnhærðir til stinnhærðir neðst. Blómin grænhvít, ytri krónublöðin oft EKKI geislastæð. -- Heimkynni: NA til M Evrópa. ------
---------------------------
ssp. pyrenaicum (La.) Bonnier & Layens. --- Stönglar dúnhærðir. Lauf óskipt, flipar 5-7, dúnhærðir til hvítlóhærðir á neðra borði. Sveipir með 12-45 geisla, blómin hvít, ytri krónublöð geislastæð. --- Heimkynni: Pýreneafjöll, Alpar, fjöll á Balkanskaga. |
|
|
|
Útbreiðsla |
|
|
|
|
|
|
|