Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi
Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.

Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.

Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.

Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.


Heracleum pubescens
Ættkvísl   Heracleum
     
Nafn   pubescens
     
Höfundur   (Hoffm.) M. Bieb.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Uxahvönn
     
Ætt   Sveipjurtaætt (Apiaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Tvíær eða fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Hvítur.
     
Blómgunartími   Júlí.
     
Hæð   - 80 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Tvíærar eða fjölærar jurtir, allt að 80 sm háar, með 2-3 hluta, neðstu laufin leggstutt, fjaðurskipt í aflanga langydda flipa, sagtennt og sem eru hárlausir ofan og dúnhærðir neðan.
     
Lýsing   Sveipir allt að 12 sm í þvermál. Geislar 18-20 talsins, reifablöð fá. Blómin hvít, ytri krónublöð gagnstæð. Aldin 13-14 mm, klofaldin, dálítið randhærð.
     
Heimkynni   Rússland.
     
Jarðvegur   Frjór, djúpur, rakaheldinn.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Sáning.
     
Notkun/nytjar   Í fjölæringabeð.
     
Reynsla   Ekki til í Lystigarðinum (2015).
     
Yrki og undirteg.   v. wilhelmsii Boiss. -- Sveipir allt að 40 sm í þvermál. Aldin 10-13 mm, klofaldin með bogin broddhár. Heimkynni: Kákasus.
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is