Jón Thoroddsen - Barmahlíð

Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!

Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.

Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?

Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali!


Hosta fortunei 'Gigantea'
Ættkvísl   Hosta
     
Nafn   fortunei
     
Höfundur   (Baker) L.H. Bailey
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Gigantea'
     
Höf.   (2002)
     
Íslenskt nafn   Forlagabrúska
     
Ætt   Liljuætt (Liliaceae).
     
Samheiti   H. sieboldiana (Hook.) Engl.
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Hálfskuggi, skjól.
     
Blómlitur   Ljós blápurpura.
     
Blómgunartími   Snemmsumars.
     
Hæð   Allt að 75 sm
     
Vaxtarhraði   Meðalvaxtarhraði.
     
 
Vaxtarlag   Fjölæringur sem myndar laufbrúsk.
     
Lýsing   Laufin egglaga til breiðegglaga, riffluð, bládöggvuð.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Frjór, rakur en vel framræstur, ögn súr eða hlutlaus.
     
Sjúkdómar   Oftast laus við sjúkóma.
     
Harka  
     
Heimildir   davesgarden.com/guides/pf/go/52793/#b
     
Fjölgun   Skipting síðsumars eða snemma vors.
     
Notkun/nytjar   Í fjölæringabeð, í beðkanta, sem undirgróður, í ker.
     
Reynsla   Ekki í Lystigarðinum.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is