Páll Ólafsson, Ljóðið Vetrarkveðja
Margt er gott að muna þér
þó mér þú fyndist langur.
Farðu vel, þú færðir mér
fögnuð bæði og angur.

Þó að nísti frostið fast
og fölni grænir hagar
eftir þetta kuldakast
koma betri dagar.
Filipendula rubra
Ættkvísl   Filipendula
     
Nafn   rubra
     
Höfundur   (Hill) Robinson.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Roðamjaðjurt
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól, hálfskuggi.
     
Blómlitur   Djúp ferskjubleikur.
     
Blómgunartími   Ágúst.
     
Hæð   -150 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Roðamjaðjurt
Vaxtarlag   Fjölær jurt, allt að 250 sm há.
     
Lýsing   Axlablöðin nýrlaga, smálauf græn, dúnhærð aðeins á æðastrengjum á neðra borði, hárlaus að öðru leyti, endableðill allt að 20 sm í þvermál, 3-flipóttir, flipar lensulaga-aflangir, skertir, neðri smáblöð 3-5 flipótt. Blómin djúp ferskjubleik í stórum nokkuð þéttum hálfveipum.
     
Heimkynni   A N Ameríka.
     
Jarðvegur   Jafnrakur, frjór.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   2
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Skipting, sáning.
     
Notkun/nytjar   Sem undirgróður, við tjarnir og læki, í beð.
     
Reynsla   Meðalharðgerð jurt, oft ruglað saman við rósamjaðjurt.
     
Yrki og undirteg.   'Venusta' ('Magnifica') allt að 200 sm há, blómin dökkbleik.
     
Útbreiðsla  
     
Roðamjaðjurt
Roðamjaðjurt
Roðamjaðjurt
Roðamjaðjurt
Roðamjaðjurt
Roðamjaðjurt
Roðamjaðjurt
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is