Úr ljóðinu Barmahlíð eftir Jón Thoroddsen Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!
|
Ættkvísl |
|
Primula |
|
|
|
Nafn |
|
algida |
|
|
|
Höfundur |
|
Adams. |
|
|
|
Ssp./var |
|
|
|
|
|
Höfundur undirteg. |
|
|
|
|
|
Yrki form |
|
|
|
|
|
Höf. |
|
|
|
|
|
Íslenskt nafn |
|
Freralykill |
|
|
|
Ætt |
|
Maríulykilsætt (Primulaceae). |
|
|
|
Samheiti |
|
|
|
|
|
Lífsform |
|
Fjölær jurt. |
|
|
|
Kjörlendi |
|
Sól - hálfskuggi. |
|
|
|
Blómlitur |
|
Fjólublár - ljósfjólublár, gult auga. |
|
|
|
Blómgunartími |
|
Snemmsumars. |
|
|
|
Hæð |
|
Allt að 20 sm |
|
|
|
Vaxtarhraði |
|
|
|
|
|
|
|
|
Vaxtarlag |
|
Lágvaxin oft skammlíf tegund, sumargræn, oftast mjölvuð, yfirleitt ekki skriðul. Lauf hárlaus, slétt eða hrukkótt með fíngerðar tennur, aftursveigð í brumlegunni, vængjuð við blaðfót en oft ógreinilega. (Sbr. Section Aleurita í EGF) |
|
|
|
Lýsing |
|
Lík gefnarlykli (P. farinosa) og blúndulykli (P. frondosa) en ytri lauf í eins konar jarðlægum kransi, öfugegglaga, fíntennt. Stoðblöð bandlaga, aftursveigð, ekki uppblásin við grunninn. Blómstönglar lengjast við fræþroskun, haldast beinir, bikar allt að 1 sm, pípulaga, skertur til meir en hálfs í snubbótta, mjó-aflanga flipa. Blóm í sveip, fjólublá - ljósfjólublá. Krónublöð sýld. Krónupípan stendur ekki út úr bikarnum og fræhýði nær heldur ekki út úr bikarnum. |
|
|
|
Heimkynni |
|
Kákasus, N Íran, Afganistan, N-Pakistan, Rússland, Kína, N-Mongólía. |
|
|
|
Jarðvegur |
|
Frjór, vel framræstur, rakaheldinn. |
|
|
|
Sjúkdómar |
|
Engir. |
|
|
|
Harka |
|
5 |
|
|
|
Heimildir |
|
= 1, 2, 12 |
|
|
|
Fjölgun |
|
Skipting, sáning. |
|
|
|
Notkun/nytjar |
|
Í fjölæringabeð, í breiður, í kanta. |
|
|
|
Reynsla |
|
Ekki til sem stendur (var um tíma í garðinum og stóð sig með prýði) - stendur til að endurnýja. |
|
|
|
Yrki og undirteg. |
|
|
|
|
|
Útbreiðsla |
|
|
|
|
|
|
|