Úr ljóðinu Barmahlíð eftir Jón Thoroddsen
Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!
Rubus allegheniensis
Ættkvísl   Rubus
     
Nafn   allegheniensis
     
Höfundur   L.H. Bail.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Fjallaklungur
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Hálfrunni eða fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól eða hálfskuggi.
     
Blómlitur   Hvítur.
     
Blómgunartími   Júní-júlí, ber í september.
     
Hæð   120-180 sm
     
Vaxtarhraði   Meðalvaxtarhraði.
     
 
Vaxtarlag   Lauffellandi runni allt að 300 sm hár og 60-120 sm í þvermál. Stönglar uppréttir eða dálítið bogsveigðir við toppinn, áberandi kirtil-ullhærðir, með krókbogin þornhár.
     
Lýsing   Laufin 3-5 fingruð, laufleggir kirtil-ullhærðir. smálauf allt að 20,5 sm, egglaga, odddregin, tvítennt, ullhærð neða, með 10-14 pör af æðastrengjum. Blómin hvít, í allt að 20 sm löngum klösum, bikar dúnhærður, kirtilhærður, bikarblöð ydd, krónublöð mjó. Aldin keilulaga, svört, allt að 12,5 mm.
     
Heimkynni   N Ameríka.
     
Jarðvegur   Sendinn, meðalfrjór, rakaheldinn, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   Z3
     
Heimildir   1, www.pfaf.org/user/Plant.aspx?LatinName=Rubus+allegheniensis, davesgarden.com/guides/pf/go/55591/#b
     
Fjölgun   Sáning (fræin eru forkæld), haustgræðlingar, sveiggræðsla, skifting snemma vors, rétt áður en laufin birtast.
     
Notkun/nytjar   Í blönduð trjá- eða runnabeð. Þolir þurrk. Æt ber.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta undir þesu nafni, sem var sáð til 1989 og gróðursett í beð 1994, þrífst vel, myndar rótarskot.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is