Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi
Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.

Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.

Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.

Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.


Crocus ancyrensis 'Goldilocks'
Ættkvísl   Crocus
     
Nafn   ancyrensis
     
Höfundur   (Herb.) Maw.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Goldilocks'
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Sunnukrókus*
     
Ætt   Sverðliljuætt (Iridaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Hnýði.
     
Kjörlendi   Sólríkur vaxtarstaður.
     
Blómlitur   Djúpgulur.
     
Blómgunartími   Vorblómstrandi- apríl.
     
Hæð   - 10 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag  
     
Lýsing   Þetta er gamalt uppáhaldsyrki og eitt af þeim bestu með djúpgul blóm. Blómin eru með áberandi brúna bletti á ytra borði.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Léttur, meðalfrjór, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   = Upplýsingar af netinu.
     
Fjölgun   Hliðarhnýði.
     
Notkun/nytjar   Í trjábeð, í beðkanta.
     
Reynsla   Hnýði úr blómabúð (frá Hollandi) voru gróðursettir í beð 1997, C5-B08, Þrífst vel, blómviljugur.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is