Málsháttur
Engin er rós án þyrna.
Acer rufinerve
Ættkvísl   Acer
     
Nafn   rufinerve
     
Höfundur   Sieb. & Zucc.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Ryðhlynur
     
Ætt   Hlynsætt (Aceraceae)
     
Samheiti  
     
Lífsform   Tré
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Grænleitur.
     
Blómgunartími   Vor.
     
Hæð   - 10 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Tré sem getur orðið allt að 10 m hátt og álíka breitt. Sennilega lægra hérlendis. Greinar og brum döggvuð í fyrstu, hárlaus eða með hvítt hár að vetrinum, hvítrákótt. Nær fullum þroska á 30-40 árum.
     
Lýsing   Lauf 3-flipótt, 6-12 sm löng, hliðarflipar vita dálítið uppávið, fremur hvasstenntir, laufin dökkgræn ofan, æðastrengir á neðra borði hærðir í fyrstu en verða fljótt hárlausir. Haustlitir fagurrauðir eða skærgulir. Blóm grænleit, í uppréttum rústrauðuhærðum klösum, koma skömmu síðar en blómin. Vængir mætast í gleiðu horni eða eru þvert útstæðir, 2 sm langir.
     
Heimkynni   Japan.
     
Jarðvegur   Margskonar jarðvegur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   1, 7, http://www.plantdatabase.co.uk
     
Fjölgun   Sáning strax og fræin hafa náð fullum þroska eða eftir að þau hafa verið forkæld.
     
Notkun/nytjar   Í þyrpingar, í beð.
     
Reynsla   Í garðinum er til ein planta sem sáð var til 2001 og lofar góðu.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is