Vorið góða, grænt og hlýtt (Heinrich Heine, þýðing)
Vorið góða, grænt og hlýtt,
græðir fjör um dalinn,
allt er nú sem orðið nýtt,
ærnar, kýr og smalinn.

Kveður í runni, kvakar í mó
kvikur þrastasöngur;
eins mig fýsir alltaf þó:
aftur að fara í göngur.
Acer divergens
Ættkvísl   Acer
     
Nafn   divergens
     
Höfundur   Koch ex Pax.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn  
     
Ætt   Hlynsætt (Aceraceae).
     
Samheiti   Acer cappadocicum Gled. ssp. divergens (K. Koch ex Pax) A. E. Murray
     
Lífsform   Runni - lítið tré
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Gulgrænn.
     
Blómgunartími   Síðla vors.
     
Hæð   4-6 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Lauffellandi runni eða tré, 4,7-6 m hátt og 6-9 m breitt. Blómlitur gulgrænir, lítt áberandi.
     
Lýsing   Lauf oftast 5- eða 3-flipótt, 2-3 sm breið, djúpflipótt, flipar breið-egglaga, heilrendir, yddir eða snubbóttir, grunnur þverstýfður til næstum hjartalaga, netæðótt á neðraborði, hárlaus. Vængir láréttir, endar sveigjast upp á við, 2,5 sm langir og 1 sm breiðir.
     
Heimkynni   Tyrkland (Transkákasus).
     
Jarðvegur   Frjór, meðalrakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   4
     
Heimildir   1,7, http://davesgarden.com
     
Fjölgun   Sumargræðlingar. Fræi sem er sáð að haustinu, strax og það er þroskað eða eftir forkælingu. Blómskipanir með fræinu eiga að fá að þorna á plöntunni og svo er fræinu safnað.
     
Notkun/nytjar   Í þyrpinga, í beð. Meðalvökvun, vökvið reglulega, ekki offvökva. Fallegir haustlitir.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta sem sáð var til 1996 og lofar góðu.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is