Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi
Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.

Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.

Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.

Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.


Lonicera × pseudochrysantha
Ættkvísl   Lonicera
     
Nafn   × pseudochrysantha
     
Höfundur   Barua
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Reglutoppur
     
Ætt   Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
     
Samheiti   L. chrysantha × L. xylosteum
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól-hálfskuggi.
     
Blómlitur   Gulhvítur.
     
Blómgunartími   Vor-sumar.
     
Hæð  
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag  
     
Lýsing   Miklu líkari L. chrysantha en L. xylosteum, en með breiðari stoðblöð.
     
Heimkynni   Garðablendingur.
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, meðalrakur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   3
     
Heimildir   1
     
Fjölgun   Vetrar- eða sumargræðlingar, sveiggræðsla.
     
Notkun/nytjar   Í blönduð beð, í þyrpingar, í kanta.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum eru til tvær plöntur undir þessu nafni, sem sáð var til 1990 og gróðursettar í beð 1994 og 2000, báðar þrífast vel og kala lítið.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is