Jón Thoroddsen - Barmahlíð

Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!

Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.

Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?

Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali!


Lonicera tatarica ‘Punicea’
Ættkvísl   Lonicera
     
Nafn   tatarica
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   ‘Punicea’
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Rauðtoppur
     
Ætt   Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól-hálfskuggi.
     
Blómlitur   Bleikur.
     
Blómgunartími   Vor-sumar.
     
Hæð   - 4 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Uppréttur, lauffellandi runni, allt að 4 m hár. Sprotar gráir, hárlausir,
     
Lýsing   Lík L. tatarica ‘Rosea, en blómin eru einlit bleik.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, meðalrakur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   3
     
Heimildir   7
     
Fjölgun   Vetrar- eða sumargræðlingar, sveiggræðsla.
     
Notkun/nytjar   Í limgerði, blönduð beð, í þyrpingar.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni, sem sáð var til 2000 og gróðursett í beð 2004.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is