Halldór Kiljan Laxness - Heimsljós

"Fegursta blómið, það lifir í huldum stað, fæstir fá nokkurntíma að sjá það, mörgum sést yfir það, nokkrir kunna ekki skil á gildi þess, þeir sem uppgötva það munu ekki sjá annað blóm síðan. Allan daginn hugsar maður um það. Þegar maður sefur dreymir mann það. Maður deyr með nafn þess á vörum."

Lonicera tatarica ‘Alborosea’
Ættkvísl   Lonicera
     
Nafn   tatarica
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   ‘Alborosea’
     
Höf.   (Späth 1880)
     
Íslenskt nafn   Rauðtoppur
     
Ætt   Geitblaðsætt (Caprifoliaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól-hálfskuggi.
     
Blómlitur   Ljósbleikur.
     
Blómgunartími   Vor-sumar.
     
Hæð   - 4 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Uppréttur, lauffellandi runni, allt að 4 m hár. Sprotar gráir, hárlausir,
     
Lýsing   Lauf allt að 6 sm, egglaga til lensulaga, hvassydd, bogadregin eða hálfhjartalaga við grunninn, oftast hárlaus, sjaldan smádúnhærð, bláleit á neðra borði. Blómin tvö og tvö saman, axlastæð. Blómleggir allt að 2 sm. Krónan allt að 2,5 sm. Krónupípan bein eða ögn útblásin við grunninn. Berin hnöttótt, skarlatsrauð til gulappelsínugul. Blómin ljósbleik, stór.
     
Heimkynni   Yrki
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, meðalrakur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   1, 7
     
Fjölgun   Vetrar- og sumargræðlingar, sveiggræðsla.
     
Notkun/nytjar   Í klippt eða óklippt limgerði, í þyrpingar, í blönduð runna og trjábeð.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni, sem gróðursett var í beð 1980, vex vel, kelur lítið sem ekkert.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is