Hulda - Úr ljóðinu Sorg
Þar sem blóm í laufalautum
ljúfu máli saman tala,
sem að ást og angur skilja, ?
blágresi og burknar grannir,
brönugrös og músareyra,
ljósberi og lækjarstjarna,
litlar fjólur, æruprísar,
gullmura og gleym-mér-eigi, ?
vildi ég mega minnast þín.
Potentilla fruticosa 'Pyrenaica'
Ættkvísl   Potentilla
     
Nafn   fruticosa
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Pyrenaica'
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Runnamura
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti   P. farreri protrata Hort.,1890.
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Gullgulur.
     
Blómgunartími   Júlí-september.
     
Hæð   20 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Jarðlægur runni, allt að 20 sm hár.
     
Lýsing   Lauf um 2 sm löng, smálauf allt að 3, aflöng-oddbaugótt, græn ofan, blágræn neðan. Blóm 2,5 sm í þvermál, gullgul. Krónublöðin dökkgul neðan (!), blómstrar lengi.
     
Heimkynni   Klón.
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, meðalrakur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   H4
     
Heimildir   = 1, 7
     
Fjölgun   Sumargræðlingar, 7,5 sm langir græðlingar með hæl síðsumars.
     
Notkun/nytjar   Í beð, í steinhæðir.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni sem sáð var til 1996, er í sólreit 2011.
     
Yrki og undirteg.   AÐRAR UPPLÝSINGAR: Er hugsanlega úr Pyreneafjöllum er samt sérstakt klón og ekki er hægt að líta á það sem villiafbrigðið v. pyrenaica Willd.
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is