Snorri Hjartarson - Lyng

Gott er að leggjast í lyngið,
sjá lauf glóa, finna kvik
fjaðurmjúk atlot þess, fagna
í fegurð jarðar meðan rauð
og lág sólin lækkar
og lyngbreiðan er ilmgrænt haf
sem ber þig að hljóðri húmströnd
og hylur þig gleymsku.

Berberis thunbergii ‘Erecta’
Ættkvísl   Berberis
     
Nafn   thunbergii
     
Höfundur   DC.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   ‘Erecta’
     
Höf.   (Horvath 1955)
     
Íslenskt nafn   Sólbroddur
     
Ætt   Mítursætt (Berberidaceae)
     
Samheiti  
     
Lífsform   Runni
     
Kjörlendi   Sól og skjól.
     
Blómlitur   Gulur með rauðri slikju
     
Blómgunartími   Júní
     
Hæð   -1 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag  
     
Lýsing   Lauffellandi runni, mjög stífuppréttar greinar, vita samt seinna frá hver annarri. Lauf mjög ljósgræn, falla snemma af runnanum.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, meðalrakur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   Z4
     
Heimildir   7
     
Fjölgun   Sumargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Stakstæðir, í raðir, í blönduð beð og víðar.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni sem sáð var til 1989 og gróðursett í beð 1994. Hefur kalið mismikið árlega. Ólíklegt er að rétt planta (Berberis thunbergii ‘Erecta’) hafi komið upp af fræinu.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is