Jón Helgason - Úr ljóðinu Áfangar
Séð hef ég skrautleg suðræn blóm
sólvermd í hlýjum garði;
áburð og ljós og aðra virkt
enginn til þeirra sparði;
mér var þó löngum meir í hug
melgrasskúfurinn harði,
runninn upp þar sem Kaldakvísl
kemur úr Vonarskarði.
Malus × adstringens ‘Hopa’
Ættkvísl   Malus
     
Nafn   × adstringens
     
Höfundur   Zab.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   ‘Hopa’
     
Höf.   (Hansen)
     
Íslenskt nafn   Dúnepli
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti   Malus ‘Pink Sunburst’
     
Lífsform   Lauffellandi tré.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Bleikur-résbleikur.
     
Blómgunartími   Vor.
     
Hæð   -5-7 m erlendis.
     
Vaxtarhraði   Meðalvaxtarhraði.
     
 
Vaxtarlag   Lítið, breitt og gisgreinótt, upprétt tré allt að 4 m hátt.
     
Lýsing   ‘Hopa’ er gamaldags skrautepl og ‘villiepli’ (crabapple) með æt epli, með fjölda blóma á vorin a.m.k erlendis. Blómstrar áður en laufin koma. Þetta er sumargrænt upprétt tré, hvelft í vextinum með útréttar greinar ögn drúpandi, 5,1-7,6 m há og 4,6-6,1 m breið erlendis. Laufin eru oddbaugótt-egglaga til egglensulaga, oft sepótt, dökkgræn-græn, allt að 7,5 sm löng, stuttydd, hvasssagtennt. Laufn koma í ljós rétt á eftir knúbbunum. Á miðju vori birtast fjölmargir, dökkrauðir-purpurarauðir knúbbarnir á lauflausum greinunum og springa út, blómin eru bleik-rósbleik og ilmandi með hvíta stjörnu í miðjunni. Blómin eru 4-5 sm breið, einföld og standa lengi. Eplin kúlulaga, 2 sm breið, holdið gult, þroskast síðsumars, þau eru skærrauð til skarlatsrauð oftast gulleit á skuggahliðinni. Bikar langær eða skammær. Skordýrafrævun. Á haustin verða laufin gulflikrótt, appelsínugul og appelsinurauð.
     
Heimkynni   Blendingur.
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, djúpur, vel framræstur, rakaheldinn allt sumarið.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   Z3
     
Heimildir   7, http://www.learn2grow.com, http://www.sunnygardens.com, http://www.backyardgardener.com
     
Fjölgun   Græðlingar.
     
Notkun/nytjar   Stök á grasflöt, notuð fremst í trjákanti, í röðum, í limgerði. Fallegt tré með fallega og æta ávexti. Þetta tré þrífst vel í allskonar jarðvegi en verður fallegra í frjóum jarðvegi með safnhaugamold. Þurfa áburð á fárra ár fresti.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til aðkeypt planta, sem var gróðursett í beð 2005. Innflutt frá Hollandi. Lítil reynsla hérlendis, en hefur blómstrað í garði á Akureyri.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla   AÐRAR UPPLÝSINGAR: Langt kuldatímabil er nauðsynlegt hvern vetur svo að blómin þroskist á vorin. --- Þetta yrki myndar rótarskot frá rótunum sem eru efst í jarðveginum. -- Plantan er heilbrigðust þar sem sumrin eru hlý og ekki mjög rök. ---- Eplin eru góð að gera hlaup úr.
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is