Þuríður Guðmundsdóttir - Rætur
Ég geng um skrúðgarða borgar
og blómin horfa á mig
litríkum framandi augum
og ilmur þeirra er alltaf nýr

Í fjarska situr fölblá gleymmérei
á fötum lítils barns

Því blágresi, holtasóley og steinbrjótur
voru blóm bernsku minnar

Og rætur þeirra
verða alltaf mínar

Spiraea chamaedryfolia v. transiens
Ættkvísl   Spiraea
     
Nafn   chamaedryfolia
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var   v. transiens
     
Höfundur undirteg.   Zabel
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Bjarkeyjarkvistur
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Hvítur.
     
Blómgunartími   Sumar.
     
Hæð   - 2,2 m
     
Vaxtarhraði   Meðalhraðvaxta.
     
 
Vaxtarlag   Uppréttur runni.
     
Lýsing   Lauffellandi runni allt að 2,2 m hár og 160 sm breiður. Líkur aðaltegundinni.
     
Heimkynni   Rússland.
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, meðalrakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   5
     
Heimildir   flower.onego.ru/kustar/spirae_v.html
     
Fjölgun   Sumargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í blönduð runnabeð. Harðgerður runni.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta undir þessu nafni, sem sáð var til 1993, og gróðursett í beð 1995, þrífst vel, kelur yfirleitt lítið og ber blóm
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is