Málsháttur
Engin er rós án þyrna.
Picea abies ‘Pumila’
Ættkvísl   Picea
     
Nafn   abies
     
Höfundur   (L.) Karst.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   ‘Pumila’
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Rauðgreni
     
Ætt   Þallarætt (Pinaceae).
     
Samheiti   P. abies f. pumila (R. Smith ) Rehd.
     
Lífsform   Sígrænn, dvergvaxinn runni.
     
Kjörlendi   Sól eða hálfskuggi.
     
Blómlitur   Kk reklar gulir, kvk reklar rauðir.
     
Blómgunartími   Maí-júní.
     
Hæð  
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Dvergform, lágvaxið, breiðvaxið og óreglulegt, neðri greinar mjög útbreiddar og jarðlægar, en þær efri vita upp á við.
     
Lýsing   Ársprotar gulbrúnir, hárlausir, grannir og mjög sveigjanlegir. Nálanabbar mjög áberandi. Ársvöxtur 2-3 sm. Brum ljósappelsínugul, egglaga, endabrum hliðagreina 2,5 mm löng, hin 1,5-2 mm, yfirleitt 2 lárétt rétt við endabrumið. Barrnálar skærgrænar, beinar, fíngerðar, flatar, 6-10 mm langar og 0,5 til 0,7 mm breiðar, gisstæðar með fíngerðum oddum. Nálar eru í þéttum röðum og liggja hver yfir annarri, þær að neðri ögn lengri en þær efri (á líka við um f. ‘Pumila glauca’ og ‘Pumila Nigra’). Loftaugaraðir 1-2, ná alveg fram í oddinn.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Rakur, meðalfrjór, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   4
     
Heimildir   7
     
Fjölgun   Sumargræðlinga með þokuúðun.
     
Notkun/nytjar   Í blönduð beð, í þyrpingar.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum eru til gamlar plöntur, sem þrífast vel, ekkert kal.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is