Ólafur Jóhann Sigurðsson - Á vordegi Grundin eignast gullinn fífil,
geislafingur hlýir strjúka
lambakóng með lítinn hnýfil,
lambagrasið rauða og mjúka.
Vappar tjaldur, vellir spói,
verpir í broki mýrispýta.
Bráðum kveikir fenjaflói
fífublysið mjallahvíta.
Bráðum mun í morgunstillu
meðan þokan kveður dranga
ljósberi hjá lágri syllu
lyfta kolli til að anga.
Blíða daga, bjartar nætur
bugðast á með tærum hyljum
eftir laut sem litlir fætur
lásu forðum berum iljum.
|
Ættkvísl |
|
Vaccinium |
|
|
|
Nafn |
|
corymbosum |
|
|
|
Höfundur |
|
L. |
|
|
|
Ssp./var |
|
|
|
|
|
Höfundur undirteg. |
|
|
|
|
|
Yrki form |
|
|
|
|
|
Höf. |
|
|
|
|
|
Íslenskt nafn |
|
Fenjabláber |
|
|
|
Ætt |
|
Lyngætt (Ericaceae). |
|
|
|
Samheiti |
|
Cyanococcus amoenus (Aiton) Small; C. atrococcus (A. Gray) Small; C. corymbosus (Linnaeus) Rydberg; C. cuthbertii Small; C. elliottii (Chapman) Small; C. fuscatus (Aiton) Small; C. holophyllus Small; C. margarettae (Ashe) Small; C. simulatus (Small) Small; C. virgatus (Aiton) Small; Vaccinium amoenum Aiton; V. atrococcum (A. Gray) A. Heller; V. australe Small; V. constablaei A. Gray; V. corymbosum var. albiflorum (Hooker) Fernald; V. corymbosum var. glabrum A. Gray; V. elliottii Chapman; V. formosum Andrews; V. fuscatum Aiton; V. simulatum Small; V. virgatum Aiton. |
|
|
|
Lífsform |
|
Lauffellandi runni. |
|
|
|
Kjörlendi |
|
Sólríkur vaxtarstaður eða hálfskuggi. |
|
|
|
Blómlitur |
|
Hvítur, dálítið rauðleit. |
|
|
|
Blómgunartími |
|
Maí-júní. |
|
|
|
Hæð |
|
100-200 sm |
|
|
|
Vaxtarhraði |
|
|
|
|
|
|
|
|
Vaxtarlag |
|
Lauffellandi, uppréttur runni, 1-2 m hár. Greinar gulgrænar, sívalar til kantaðarm hárlausar eða ögn dúnhærðar rákir, vörtóttar. |
|
|
|
Lýsing |
|
Lauf hálf-leðurkennd, 3-8 sm, dökkgræn, egglaga til lensulaga, 15-70 × 10-25 mm, heilrend eða jaðrar hvasssagtenntir, appelsínulit til skarlatsrauð að haustinu, hárlaus bæði ofan og neðan, æðastrengir dálítið hærðir á neðra borði. Blómin í þéttum klösum, bikar hárlaus grænn, blámengaður, króna pípu-krukkulaga til mjóegglaga, 6-10 mm, hvít eða dálítið rauðleit, 5-12 mm. Frjóþræðir oftast hærðir. Ber hnöttótt, 8-15 mm, mött, blásvört, mikið döggvuð, sæt og bragðgóð.
v. albiflorum (Hook.) Fern.
laufin fínlega smátennt til randhærð-sagtennt, skærgræn.
|
|
|
|
Heimkynni |
|
A Norður-Ameríka. |
|
|
|
Jarðvegur |
|
Léttur, vel framræstur, súr jarðvegur |
|
|
|
Sjúkdómar |
|
|
|
|
|
Harka |
|
|
|
|
|
Heimildir |
|
1,
eFloras.org Flora of North America,
http://www.backyardgardener.com, www.pfaf.org/user/Plant.aspx?LatinName=Vaccinium+corymbosum
|
|
|
|
Fjölgun |
|
Með fræi eða græðlingum. |
|
|
|
Notkun/nytjar |
|
Í beð eða ker. |
|
|
|
Reynsla |
|
Sáð í Lystigarðinum 1992, gróðursett í beð 2001 og 2010 var ekkert kal og engin blóm. |
|
|
|
Yrki og undirteg. |
|
Nokkur yrki af V. corymbosum eru komnar í sölu hérlendis, þ. e. ‘Alvar’, ‘Aino’, ‘North Sky’, ’North Blue’ og ‘Chippewa’.
|
|
|
|
Útbreiðsla |
|
AÐRAR UPPLÝSINGAR:
Bláber þurfa súran jarðveg.
Ef rækta á þessar plöntur í kerum þarf að vökva þær oftar en ella. 2-3 hvert ár ætti að endurnýja moldina í kerinu eða bæta hann með lífrænum áburði.
Lyng sem er ræktað í beði þarf reglulega vökvun, en látið jarðveginn þorna á milli, vökvið vel með 2-3 vikna millibili.
Plöntuna ætti að rækta í hálfskugga þar sem sólin skín á hana aðeins á kaldasta tíma dagsins. Til að koma í veg fyrir skemmdir vegna frosta ætti að skýla runnanum með því að þekja jarðveginn kringum plöntuna með hálmi eða þurru laufi.
|
|
|
|
|
|