Málsháttur
Engin er rós án þyrna.
Primula spectabilis
Ættkvísl   Primula
     
Nafn   spectabilis
     
Höfundur   Tratt.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Tígullykill
     
Ætt   Maríulykilsætt (Primulaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Bleikrauður til lillalitur.
     
Blómgunartími   Júní-júlí.
     
Hæð   2-15 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Tígullykill
Vaxtarlag   Lauf 1,5-10 x 1-4 sm, ystu laufin eru alveg við jörð, breið egg-tígullaga til öfugegglaga til oddbaugótt eða aflöng, snubbótt til hvassydd, glansandi, með dreifðar, smár dældir á efra borði sem birtast sem svarta doppur, jaðrar brjóskkenndir.
     
Lýsing   Blómstilkar 2-15 sm , blómskipunin 2-5 blóma, stoðblöð 2-15 mm, band-lensulaga, rauðmenguð. Blómleggir 3-20 mm, uppréttir. Bikar 3-15 mm, pípulaga, flipar egglaga eða lensulaga, fræflar purpuralitir. Króna 2-4 sm, bleikrauð til lillalit, augða hvítt, flipar öfugegglaga, greinilega framjaðraðir, kirtilhærðir neðan.
     
Heimkynni   Við Gardavatn, N Ítalíu. (endemísk).
     
Jarðvegur   Rakur, kalkríkur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar   Engir
     
Harka   6
     
Heimildir   = 1, www.iucnredlist.org/details, encyclopedia.alpinegardensociety.net/plants/Primula/spectabilis
     
Fjölgun   Skipting, sáning.
     
Notkun/nytjar   Í fjölæringabeð, í steinhæðir. Fer að blómstra treglega með aldrinum.
     
Reynsla   Þrífst vel í Gasagarði Reykjavíkur. Myndirnar eru teknar í Grasagarði Reykjavíkur.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla   Einlend (endemísk) á N Ítalíu, fundin á mörgum stöðum, ekki talin vera í útrýmingarhættu..
     
Tígullykill
Tígullykill
Tígullykill
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is