Málsháttur Eigi fellur tré við hið fyrsta högg.
|
Ættkvísl |
|
Colchicum |
|
|
|
Nafn |
|
autumnale |
|
|
|
Höfundur |
|
L. |
|
|
|
Ssp./var |
|
|
|
|
|
Höfundur undirteg. |
|
|
|
|
|
Yrki form |
|
|
|
|
|
Höf. |
|
|
|
|
|
Íslenskt nafn |
|
Haustlilja |
|
|
|
Ætt |
|
Liljuætt (Liliaceae). |
|
|
|
Samheiti |
|
|
|
|
|
Lífsform |
|
Fjölær jurt með hnýði. |
|
|
|
Kjörlendi |
|
Sól -hálfskuggi. |
|
|
|
Blómlitur |
|
Purpurableikur til hvítur. |
|
|
|
Blómgunartími |
|
September-október. |
|
|
|
Hæð |
|
15-30 sm |
|
|
|
Vaxtarhraði |
|
|
|
|
|
|
|
|
Vaxtarlag |
|
Hnýði 2,5-6 x 2-4 sm, egglaga til hálfhnöttótt, hnýðishýði dökkbrúnt, himnukennt til leðurkennt, háls 2-4 sm langur. Lauf 14-35 x 1-7 sm, 3-5, leðurkennd, band-lensulaga til breiðlensulaga, upprétt til útstæð. |
|
|
|
Lýsing |
|
Blóm 1-6, bjöllulaga, stundum mjó-bjöllulaga. Blómhlífarblöð 4-6 x 1-1,5 am, mjó-oddbaugótt til aflöng-oddbaugótt, purpurableik til hvít, stöku sinnum tígulstrengjótt. Frjóþræðir 1-1,6 sm, hárlausir. Frjóhnappar gulir, festir á bakinu, frjó gult. Stílar bognir efst, fræni ná niður eftir stílnum um 3-5 mm. Hýði 2-6 sm, aflöng-egglaga. |
|
|
|
Heimkynni |
|
V & M Evrópa. |
|
|
|
Jarðvegur |
|
Meðalrakur, vel framræstur, rakaheldinn. |
|
|
|
Sjúkdómar |
|
|
|
|
|
Harka |
|
5 |
|
|
|
Heimildir |
|
= 1 |
|
|
|
Fjölgun |
|
Sáning (nýtt fræ), skipting á hnausnum þegar plantan er í dvala. Hnýði sett niður í ágúst, 10-15 sm dýpt. |
|
|
|
Notkun/nytjar |
|
Í steinhæðir, sem undirgróður, í kanta. |
|
|
|
Reynsla |
|
Í Lystigarðinum er til ein gömul planta og önnur sem sáð var til 1987, gróðursett í beð 1991, báðar þrífast vel. Meðalharðgerð planta sem á að standa óhreifð árum saman. Öll plantan er eitruð. |
|
|
|
Yrki og undirteg. |
|
Yrkið 'Album Plenum' er með ofkrýnd blóm. Kom í garðinn 2008, þrífst vel og blómstrar. |
|
|
|
Útbreiðsla |
|
|
|
|
|
|
|