Málsháttur
Mjór er mikils vísir.
Cerastium alpinum
Ættkvísl   Cerastium
     
Nafn   alpinum
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Músareyra
     
Ætt   Caryophyllaceae
     
Samheiti  
     
Lífsform   fjölær
     
Kjörlendi   sól
     
Blómlitur   hvítur
     
Blómgunartími   maí-júní
     
Hæð   0.1-0.2m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Myndar breiður með fá eða enga axlaskúfa úr laufum, meira eða minna ullhærð.
     
Lýsing   Lauf allt að 1,5 sm öfugegglaga til oddbaugótt, stilklaus. Blómskipun tvígreinóttur kvíslskúfur með 1-5 blómum, mikið hærður +/-. Blóm stór, hvít, bikarblöð 7-10 mm, aflöng - lensulaga. Krónublöð 1,2-1,8 sm öfugegglaga, grunnsýld. Hýði u.þ.b. 10 mm stendur fram úr langæjum bikarnum.
     
Heimkynni   Norðurhvel, Ísland, fjöll Evrópu
     
Jarðvegur   þurr, sendinn, framræstur, ófrjór
     
Sjúkdómar  
     
Harka   3
     
Heimildir   1,2
     
Fjölgun   skipting, sáning
     
Notkun/nytjar   steinhæðir, hleðslur, kanta, beð
     
Reynsla   Harðger, alg. um allt land. Breytileg tegund, ekki mikið ræktuð, miklu minna ágeng í steinhæðum en C. tomentosum.
     
Yrki og undirteg.   C. alpinum var. lanatum er alg. afbrigði hér á landi mikið hvítloðnara og plantan öll lægri og þéttari.
     
Útbreiðsla  
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is