Þuríður Guðmundsdóttir - Rætur
Ég geng um skrúðgarða borgar
og blómin horfa á mig
litríkum framandi augum
og ilmur þeirra er alltaf nýr

Í fjarska situr fölblá gleymmérei
á fötum lítils barns

Því blágresi, holtasóley og steinbrjótur
voru blóm bernsku minnar

Og rætur þeirra
verða alltaf mínar

Clematis hexapetala
Ættkvísl   Clematis
     
Nafn   hexapetala
     
Höfundur   Pallas.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Brúnabergsóley
     
Ætt   Sóleyjarætt (Ranunculaceae)
     
Samheiti   C. angustifolia Jacq. v. angustifolia; C.lasiantha Fisch.; C. recta subsp angustifolia; C. sibirica; C. hexapetala
     
Lífsform   Fjölær jurt
     
Kjörlendi   Sól
     
Blómlitur   Hvítur
     
Blómgunartími   Júní-ágúst
     
Hæð   30-100 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Brúnabergsóley
Vaxtarlag   Uppréttur fjölæringur.
     
Lýsing   Fjölær jurt, upprétt, 30-100 sm há, klifrar ekki. Stilkar greindir eða greinalausir, greinar með 8-12 grunnar grópar, lítillega dúnhærðir, verða hárlausir. Laufin 1- eða 2-fjaðurskipt, laufleggir 0,5-2 sm, endaflipi bandlensulaga, oddbaugóttur eða bandlaga, 1,5-10× 0,1-2(2,6) sm, leðurkennd, ögn dúnhærð bæði ofan og neðan eða næstum hárlaus og netæðótt, grunnur fleyglaga, laufin heilrend, ydd til snubbótt. Grunnæðar áberandi bæði á neðra og efra borði. Skúfar endastæðir eða axlastæðir, (1-)3 til margblóma, blómskipunarleggur 5-8,5 sm, stoðblöð eins og laufblöðin eða óskipt, lensulaga. Blóm hvít, einföld, smá, 2,5-4 sm í þvermál. Blómleggur 1-7 sm, smádúnhærður til næstum hárlaus. Bikarblöð (4 eða) 5 eða 6(-8), hvít, útstæð, mjó-öfugegglaga til mjó-aflöng. 1-2,5 sm löng, 0,3 - 1 sm breið, jaðrar bylgjóttir, floshærð eða hárlaus nema floshærð á jöðrunum á neðra borði, hárlaus á efra borði bogadregin eða næstum þverstýfð í oddinn. Fræflar 6-9 mm, hárlaus, fræflar mjó-aflangir, 2,6-3,2 mm, oddur ögn broddydd, frjóhnappar gulir, frjóþræðir grænhvítir. Eggleg dúnhærð. Stíll 5,5-8 mm, þétt ullhærður. Smáhnetur öfugegglaga, 2,5-3,5 × 2-3 mm, dúnhærðara, stíll langær 1,5-3 sm, fjaðurlíkur.
     
Heimkynni   Kína, Kórea, Mansjúría, Mongólía, A Síberia
     
Jarðvegur   Léttur, frjór, vel framræstur
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   www.eFloras.org Flora of China, http://www.dematis.hull.ac.uk, http://www.joycreek.com
     
Fjölgun   Sáning, skipting
     
Notkun/nytjar   Clematis hexapetala er góð í miðju beði eða í kanti eða í keri eða inn á milli runna. Snyrt vel erlendis í lok vetrar. Klippt rækilega að vorinu.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er til ein planta sem vex vel og blómstrar mikið.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Brúnabergsóley
Brúnabergsóley
Brúnabergsóley
Brúnabergsóley
Brúnabergsóley
Brúnabergsóley
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is