Málsháttur
Engin er rós án þyrna.
Rosa 'Loving Memory'
Ættkvísl   Rosa
     
Nafn  
     
Höfundur  
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Loving Memory'
     
Höf.   (Kordes 1977) Þýskaland.
     
Íslenskt nafn  
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti   Burgund 81, Red Cedar, Korgund 81.
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Fagurrauður.
     
Blómgunartími   Ágúst-september.
     
Hæð   30-120 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Vaxtarlag   Foreldrar: 'Henkell Royal' × einhver fræplanta. Tehybrid, stór og mikill, uppréttur runni, 30-150 sm hár og álíka breiður.
     
Lýsing   Þetta er tehybrid með falleg, fagurrauð blóm, ofkrýnd með háa miðju, mjög stór, 30 (40) krónublöð, ilma lítið eru upprétt og standa lengi. Knúbbarnir aflangir. Laufin eru dökk græn, glansa ekki. Runninn blómstrar mikið, er hraust og harðgerð og hefur mjög mikinn viðnámsþrótt gagnvart sjúkdómum.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Sendinn, leirkenndur, frjór, meðalrakur til rakur.
     
Sjúkdómar   Ónæm fyrir svartroti, mjölsvepp og ryðsvepp.
     
Harka  
     
Heimildir   Ýmsar upplýsingar af alnetinu, http://www.canadaram.com, davesgarden.com/guides/pf/go/71148/#b
     
Fjölgun   Sumar-, síðsumar- eða vetrargræðlingar, ágræðsla, brumágræðsla, sveiggræðsla.
     
Notkun/nytjar   Rósin er góð til afskurðar. Ræktuð á sólríkum stað. Blómstrar um hásumarið og fram á haust.
     
Reynsla   Var til skamman tíma í Lystigarðinum.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla   AÐRAR UPPLÝSINGAR: Var ræktuð upp af Kordes í Þýskalandi 1977 og komið í sölu af W Kordes: KOR-Kordes (Sparriesshoop) 1981. Ath. Ekki sama og 'Burgundy Iceberg' sem er klasarós með djúp-purpurarauða blómklasa.
     
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is