Úr ljóðinu Barmahlíð eftir Jón Thoroddsen Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!
|
Ættkvísl |
|
Lilium |
|
|
|
Nafn |
|
|
|
|
|
Höfundur |
|
|
|
|
|
Ssp./var |
|
|
|
|
|
Höfundur undirteg. |
|
|
|
|
|
Yrki form |
|
'Lollypop' |
|
|
|
Höf. |
|
|
|
|
|
Íslenskt nafn |
|
Skrautlilja* |
|
|
|
Ætt |
|
Liljuætt (Liliaceae). |
|
|
|
Samheiti |
|
Lilium ‘Lollipop’ |
|
|
|
Lífsform |
|
Fjölæringur og laukplanta. Asíublendingur (Asiatic hybrid). |
|
|
|
Kjörlendi |
|
Laukarnir eru gróðursettir með 15-20 (40-45) sm millibili í beð eða beðjaðra. Plantið nokkrum laukum saman í grúppur. Lilium 'Lollypop' er líka góð í ker. |
|
|
|
Blómlitur |
|
Fagurrósbleikur/ljósgráfjólublár. |
|
|
|
Blómgunartími |
|
Ágúst-september. |
|
|
|
Hæð |
|
(30-45)-75-(80) sm |
|
|
|
Vaxtarhraði |
|
|
|
|
|
|
|
|
Vaxtarlag |
|
Uppréttir, laufóttir stönglar. |
|
|
|
Lýsing |
|
Blómin eru 75-150 mm breið, næstum hvít rjómalit inn við miðju, með brúna bletti. Blómhlífarblöðin fagurrósbleika/ljósgráfjólublá, purpura til endanna, vita út eða upp á við og eru í klasa á stöngulendanum. Stönglarnir eru sterkbyggðir, uppréttir, (30-45)-75-(80) sm háir. Laufin eru glansandi dökk græn, mjólensulaga, haldast græn allt sumarið. |
|
|
|
Heimkynni |
|
Yrki / Cultivar. |
|
|
|
Jarðvegur |
|
Frjór, framræstur fremur rakur. |
|
|
|
Sjúkdómar |
|
|
|
|
|
Harka |
|
|
|
|
|
Heimildir |
|
Upplýsingar af umbúðunum,
http://www.shelmerdine.com,
http://www.learn2grow.com,
http://www.davesgarden.com,
http://www.answers.yahoo.com,
http://www.americanmeadows.com,
http://www.ces.ncsu.edu
|
|
|
|
Fjölgun |
|
Fjölgað með hliðarlaukum, einnig með æxlilaukum úr blaðöxlunum og meðlaukhreistrum. Oftast fjölgað með laukum sem myndast neðanjarðar.
Líklega myndar plantan ekki fræ, blómin eru ófrjó, eða það slær til baka, þ.e. unga plantan er ekki eins og móðurplantan. Ef safna á fræi er hýðin látin þorna á plöntunni áður en þau eru opnuð og fræinu safnað.
|
|
|
|
Notkun/nytjar |
|
Fjarlægið dauð blóm en látið stönglana standa áfram. Laukarnir eru látnir vera á sínum stað og blómstra ár eftir ár. Vex fremur hratt og búast má við að plantan lifi í a.m.k. 10 ár. Nokkuð þolin gagnvart stórborgarmengun. Mjög góð til afskurðar.
|
|
|
|
Reynsla |
|
Laukar (2 stk.) voru gróðursettir í Lystigarðinn 2003, blómstruðu mikið 2010 og margir nýir stönglar höfðu myndast síðan 2003, mun fleiri hjá lauknum sem naut meiri áburðar og vökvunar á sumrin en hinn, einnig urðu stönglarnir mun hávaxnari. |
|
|
|
Yrki og undirteg. |
|
|
|
|
|
Útbreiðsla |
|
AÐRAR UPPLÝSINGAR:
Asíublendingar eru nú sá hópur garðaliljuyrkja sem er lang algengastur, enda mjög auðvelt að rækta. Þessi blendingar úr þessum hóp kom fyrst fram í Bandaríkjunum og var nefndur Mid-Century blendingar í fyrstu. Í samanburði við austurlandablendinga blómstra Asíublendingar fyrr, plönturnar eru ekki eins hávaxnar, blómin eru ögn minni.
Asíublendingar eru komnir af tegundum frá M og A Asíu, svo sem Lilium amabile, L. bulbiferum, L. dauricum og L. lancifolium (syn. L. tigrium) til að nefna nokkrar. Þess vegna eru litbrigðin mörg og breytileikinn mikill. Asíublendingar eru með blóm sem eru upprétt, vita upp á við eða út á við eða eru hangandi, venjulega ilmlaus og eru stjörnulaga með fjölda litbrigða svo sem gulu, appelsínulitu, bleiku, rauðu, hvítu og tvílitu. Nokkrar Asíublendinganna eru gulir svo sem ‘Connecticut King’ og þekktur rauður blendingur er ‘Gran Paradiso’. Asíublendingar þrífast best með blómin í sólinni og neðri hluta stönglanna í skugga. Fjölgað með hreisturgræðlingum.
|
|
|
|
|
|