Jón Thoroddsen - Barmahlíð
Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna
og blágresið blíða
og berjalautu væna,
á þér ástaraugu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!
Sá ég sól roða
síð um þína hjalla
og birtu boða
brúnum snemma fjalla.
Skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina,
leitandi leyna.
Blómmóðir bezta,
beztu jarðargæða
gaf þér fjöld flesta
faðir mildur hæða.
Hver mun svo, er sér þig,
sálar þjáður dofa,
að gleymi guð lofa?
Hlíð, þér um haga
hlýr æ blási andi,
döggvi vordaga
dögg þig sífrjóvgandi!
Um þig aldrei næði,
af þér svo að kali,
vetur vindsvali! |
|
Ættkvísl |
|
Doronicum |
|
|
|
Nafn |
|
corsicum |
|
|
|
Höfundur |
|
( Loisel. ) Poir. |
|
|
|
Ssp./var |
|
|
|
|
|
Höfundur undirteg. |
|
|
|
|
|
Yrki form |
|
|
|
|
|
Höf. |
|
|
|
|
|
Íslenskt nafn |
|
Sauðafífill |
|
|
|
Ætt |
|
Körfublómaætt (Asteraceae). |
|
|
|
Samheiti |
|
|
|
|
|
Lífsform |
|
Fjölær jurt. |
|
|
|
Kjörlendi |
|
Sól. |
|
|
|
Blómlitur |
|
Gulur. |
|
|
|
Blómgunartími |
|
Júlí-ágúst. |
|
|
|
Hæð |
|
- 120 sm |
|
|
|
Vaxtarhraði |
|
|
|
|
|
|
|
|
Vaxtarlag |
|
Stönglar allt að 120 sm háir, efri hlutinn með kirtilhár.
|
|
|
|
Lýsing |
|
Lauf egglaga til lensulaga, hárlaus eða lítið eitt dúnhærð, bylgjutennt. Grunnlauf 9x3-16x7 sm, með stuttan legg, stöngullauf greipfætt. Körfur 3-8, allt að 4,5 sm í þvermál, í endastæðum hálfsveip, reifablöð allt að 11 mm, kirtildúnhærð. Svifhárakransar heilir. |
|
|
|
Heimkynni |
|
SV Frakkland til S Porúgal. |
|
|
|
Jarðvegur |
|
Frjór, djúpur, rakaheldinn. |
|
|
|
Sjúkdómar |
|
|
|
|
|
Harka |
|
7 |
|
|
|
Heimildir |
|
= 1 |
|
|
|
Fjölgun |
|
Sáning, skipting. |
|
|
|
Notkun/nytjar |
|
Í beð fjölæringum, í þyrpingar. |
|
|
|
Reynsla |
|
Var sáð í Lystigarðinum 1998.
Myndirnar eru teknar í Grasagarði Reykjavíkur. |
|
|
|
Yrki og undirteg. |
|
|
|
|
|
Útbreiðsla |
|
|
|
|
|
|
|