Halldór Kiljan Laxness , Bráðum kemur betri tíð.
Bráðum kemur betri tíð með blóm í haga,
sæta langa sumardaga.

Sorbus rupicola
Ættkvísl   Sorbus
     
Nafn   rupicola
     
Höfundur   (Syme) Hedl.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Urðareynir
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Hvítur.
     
Blómgunartími   Júní.
     
Hæð   Allt að 2 m
     
Vaxtarhraði  
     
 
Urðareynir
Vaxtarlag   Lauffellandi runni eða lítið tré, allt að 2 m hár, minnir á seljureyni (S. aria).
     
Lýsing   Laufin eru oddbaugótt, óskipt, um 8-15 sm löng, breiðari ofan við miðju, snubbótt, leðurkennd, með 8-10 pör af æðastrengjum, neðsti 1/3 hlutinn heilrendur, efri hlutinn mjög fín sagtenntur (tennur hvassar og vita fram á við), hvít-flókahærður neðan, laufleggurinn rauðbrúnn. Blómskipunin þéttlóhærð. Blómin um 12-16 mm í þvermál. Aldin hálfhnöttótt, 10-15 mm, græn og skærrauð, með þéttar doppur.
     
Heimkynni   S Noregur og S Svíþjóð, Eistland, Bretland.
     
Jarðvegur   Kalkblandinn, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   Z7
     
Heimildir   = 1, www.plant-identification.co.uk/skye/rosacea/sorbus-rupicola.Html,
     
Fjölgun   Sáning.
     
Notkun/nytjar   Í blönduð trjá- og runnabeð. Vex í kalksteinsklettum og basaltklettum í heimkynnum sínum.
     
Reynsla   Myndirnar eru teknar í Grasagarði Reykjavíkur.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Urðareynir
Urðareynir
Urðareynir
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is