Málsháttur
Mjór er mikils vísir.
Ranunculus polyanthemos
Ættkvísl   Ranunculus
     
Nafn   polyanthemos
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Runnasóley
     
Ætt   Sóleyjarætt (Ranunculaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Gulur.
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   20-65 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Runnasóley
Vaxtarlag   Fjölær jurt. Stönglar 20-65 sm, stinnhærðir eða næstum hárlausir, greinóttir.
     
Lýsing   Grunnlauf um 5, laufleggur 7-14 sm, blaðkan 3-flipótt, nýrlaga-fimmhyrnd, 3-6 x 4-9 sm, pappírskennd, stinnhærð, grunnur hjartalaga, miðflipinn tígullaga, 3-skipt, flipar 1 eða 2 x flipótt eða skipt, endaflipinn hliðskakkur-egglaga eða bandlaga, hliðaflipar hliðskakkir-blævængslaga, oftast tvískipt. Stöngullauf stuttleggjuð eða legglaus, 3-skipt. Blómskúfur með 3 til 4 blóm. Blómin um 1,8 sm sm. Blómleggur 3-8 sm, ögn stinnhærð. Blómbotn smádúnhærður. Bikarblöð 5, egglaga, um 7 mm, langhærð á neðra borði. Krónublöð 5, öfugegglaga, um 10x7 mm. hunangsgróp þakin hreistri, bogadregin í oddinn. Fræflar margir, frjóhnappar mjó-aflangir. Samaldin hálfhnöttótt, um 7 mm í þvermál. Fræhnotir skakk-öfugegglaga, um 3 x 2 mm, hárlausar, með mjóan kant, stíll langær, þríhyrndur, um 1 mm, krókbogin í oddinn.
     
Heimkynni   Kína, Kazakstan, Rússland (Síbería), Evrópa.
     
Jarðvegur   Sírakur, meðalfrjór.
     
Sjúkdómar  
     
Harka  
     
Heimildir   = Flora of China, http://www.efloras.org/florataxon.aspx?flora_id=1&taxon_id=233501178,
     
Fjölgun   Sáning, skipting.
     
Notkun/nytjar   Í fjölæringabeð.
     
Reynsla   Hefur verið allmörg ár í Lystigarðinum og þrifist vel, sáir sér óheppilega mikið. Ætti ekki að vera í görðum.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Runnasóley
Runnasóley
Runnasóley
Runnasóley
Runnasóley
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is