Jón Helgason - úr ljóðinu Á Rauðsgili
Hugrökk teygist á háum legg
hvönnin fram yfir gljúfravegg,
dumbrauðu höfði um dægrin ljós
drúpir hin vota engjarós.


Prunella laciniata
Ættkvísl   Prunella
     
Nafn   laciniata
     
Höfundur   (L.) L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Dúnblákolla
     
Ætt   Varablómaætt (Lamiaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól - hálfskuggi.
     
Blómlitur   Gulhvítur, sjaldan rósrauð-bleikur eða purpura.
     
Blómgunartími   Júlí-ágúst.
     
Hæð   - 30 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Dúnblákolla
Vaxtarlag   Þéttdúnhærð fjölær jurt. Stönglar allt að 30 sm háir. Lauf allt að 7 x 3 sm, efstu laufin fjaðurskipt, neðri laufin flipótt eða fjaðurskipt, laufleggur enginn eða allt að 4 sm langur.
     
Lýsing   Blómskipunin með eitt par af háblöðum, stoðblöð 10 x 15 mm. Bikar 10 mm, efri vörin þverstýfð, tennurnar vart greinanlegar, tennur á neðri vörinni band-lensulaga, allt að 2,5 mm, kögraðar. Króna allt að 18 mm, gulhvít, sjaldan rósrauð-bleik eða purpura.
     
Heimkynni   SV & M Evrópa.
     
Jarðvegur   Sendinn, vel framræstur meðalfrjór, meðalrakur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Sáning, skipting.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, í beð.
     
Reynsla   Þrífst vel.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Dúnblákolla
Dúnblákolla
Dúnblákolla
Dúnblákolla
Dúnblákolla
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is