Halldór Kiljan Laxness - Heimsljós

"Fegursta blómið, það lifir í huldum stað, fæstir fá nokkurntíma að sjá það, mörgum sést yfir það, nokkrir kunna ekki skil á gildi þess, þeir sem uppgötva það munu ekki sjá annað blóm síðan. Allan daginn hugsar maður um það. Þegar maður sefur dreymir mann það. Maður deyr með nafn þess á vörum."

Potentilla fruticosa 'Goldteppich'
Ættkvísl   Potentilla
     
Nafn   fruticosa
     
Höfundur   L.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form   'Goldteppich'
     
Höf.   J. Hachmann, 1969
     
Íslenskt nafn   Runnamura "Gullteppi"
     
Ætt   Rósaætt (Rosaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Lauffellandi runni.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Gullgulur.
     
Blómgunartími   Júlí-september.
     
Hæð   50 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Runnamura
Vaxtarlag   Næstum jarðlægur runni með útbreitt vaxtarlag, út og uppsveigðar greinar.
     
Lýsing   Lágt og flatvaxið yrki. Lauf græn. Blóm 3-4 sm breið, gullgul, mjög blómrík, einkum um hásumarið, kemur síðan með stöku blóm fram á haust.
     
Heimkynni   Yrki.
     
Jarðvegur   Meðalfrjór, meðalrakur, vel framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   h7
     
Heimildir   = 7
     
Fjölgun   Sumargræðlingar, 7,5 sm langir græðlingar með hæl síðsumars.
     
Notkun/nytjar   Í þyrpingar, í steinhæðir, í brekkur, í beð.
     
Reynsla   Í Lystigarðinum er ein aðkeypt planta sem gróðursett var í beð 1996, kelur dálítið flest ár. Þrífst vel á hlýjum stöðum. Harðgerð planta, hefur reynst mjög vel.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Runnamura
Runnamura
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is