Málsháttur
Lengi býr að fyrstu gerð.
Hylotelephium anacampseros
Ættkvísl   Hylotelephium
     
Nafn   anacampseros
     
Höfundur   (L.) H. Ohba.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Klappahnoðri
     
Ætt   Hnoðraætt (Crassulaceae)
     
Samheiti   Sedum anacampseros
     
Lífsform   Fjölær, sígræn jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   rauður
     
Blómgunartími   Ágúst-september.
     
Hæð   10-20 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Klappahnoðri
Vaxtarlag   Lágvaxi og kröftug planta, allt að 10 sm há. Rætur með hnýðum, stönglar útafliggjandi, fremur lítið greindir, kröftugur.
     
Lýsing   Lauf allt að 2 sm, stakstæð, kjötkennd, hárlaus, mörg saman við enda stöngulsins, heilrend, oddur bogadreginn með stutta sýlingu, engin laufleggur, veit niður á við. Blómskipunin þétt, lík skúf, blómin allt að 6 mm í þvermál. Bikarblöð 5, jafnstór, upprétt, lensulaga. Krónublöð 5, meira eða minna upprétt, egglaga, næstum tvöfalt lengri en bikarblöðin, bogna að jöðrunum, föl-blápurpura, ljósari í miðju blómsins. Fræflar jafn langir og krónblöðin með ljósgul-græna frjóhnappa. Frævur með óreglulega purpuralita blett.
     
Heimkynni   Pyreneafjöll, Alpafjöll
     
Jarðvegur   Framræstur, sendinn, ófrjór.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   6
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Skipting, sáning, græðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, í beð, í hleðslur, í kanta.
     
Reynsla   Harðgerð jurt, sem þolir illa berfrost (undir Sedum anacampseros í HS).
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Klappahnoðri
Klappahnoðri
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is