Jónas Hallgrímsson - Úr ljóðinu Dalvísa
Fífilbrekka! gróin grund!
grösug hlíð með berjalautum!
flóatetur! fífusund!
fífilbrekka! smáragrund!
yður hjá ég alla stund
uni best í sæld og þrautum;
fífilbrekka! gróin grund!
grösug hlíð með berjalautum!
Eryngium variifolium
Ættkvísl   Eryngium
     
Nafn   variifolium
     
Höfundur   Coss.
     
Ssp./var  
     
Höfundur undirteg.  
     
Yrki form  
     
Höf.  
     
Íslenskt nafn   Smásveipþyrnir
     
Ætt   Sveipjurtaætt (Apiaceae).
     
Samheiti  
     
Lífsform   Fjölær jurt.
     
Kjörlendi   Sól.
     
Blómlitur   Silfurblár.
     
Blómgunartími   Síðsumars.
     
Hæð   45 sm
     
Vaxtarhraði  
     
 
Smásveipþyrnir
Vaxtarlag   Fjölær jurt allt að 45 sm há, með silfurbláa blómleggi.
     
Lýsing   Lauf langæ, í grunn hvirfingum, aflöng-kringlótt, grunnur hjartalaga, milli- til dökkgræn, marmarahvít á æðastrengjunum, jaðrar tenntir. Efri lauf fjaðurskipt, þyrnótt. Reifablöð 5-7, 2-6 sm, band-lensulaga beinhvít í miðjunni, blágræn, ná upp fyrir blómkörfurnar, jaðar með 1-2 pör af þyrnum. Körfur allt að 2 sm í þvermál, kúlulaga. Blóm silfurblá.
     
Heimkynni   N Afríka.
     
Jarðvegur   Léttur, meðalfrjór, framræstur.
     
Sjúkdómar  
     
Harka   3
     
Heimildir   = 1
     
Fjölgun   Sáning, græðlingar, rótargræðlingar.
     
Notkun/nytjar   Í steinhæðir, beð með fjölærum jurtum.
     
Reynsla   Í uppeldi 2005, lítil reynsla komin á tegundina.
     
Yrki og undirteg.  
     
Útbreiðsla  
     
Smásveipþyrnir
Lystigarður Akureyrar - Eyrarlandsstofa - Sími: 462 7487 - Netfang: gkb@akureyri.is